03.03.1932
Neðri deild: 19. fundur, 45. löggjafarþing.
Sjá dálk 1416 í B-deild Alþingistíðinda. (1167)
59. mál, eignarnám á landspildu á Bolungavíkurmölum
Flm. (Jón Auðunn Jónsson):
Ég bjóst við, að hæstv. atvmrh. mundi leggja fyrir þetta þing frv. til laga, er heimiluðu að taka eignarnámi lóðir og lendur þar, sem mannvirki hafa verið reist, en samkomulag ekki náðst um þær landspildur, er mannvirkin þurfa á að halda. Mér er kunnugt um, að vitamálastjóri hafði samið frv. um þetta efni, en þar sem helzt lítur út fyrir, að slíkt frv. komi ekki fram á þessu þingi, þá hefi ég leyft mér að bera fram tvo frv. um þessi efni, annað um eignarnám á landspildu á Bolungavíkurmölum í kringum öldubrjótinn þar, en hitt um eignarnám á landspildu í Skeljavík við Hnífsdal til afnota við starfrækslu bátabryggju þar á staðnum.
Við fyrra frv., eða það, sem hér liggur fyrir, er að athuga, að hreppsnefnd Hólshrepps fer fram á, að þó að landið í kringum brimbrjótinn í Bolungavík hafi hækkað í verði, síðan 1907, er byrjað var á þessu mannvirki, þá eigi landeigandi ekki að njóta þeirrar verðhækkunar, heldur er tilætlunin, að landið verði metið eftir því verðlagi, sem á því var áður en brimbrjótsbyggingin hækkaði það í verði.
Með 2. gr. frv. er tilskilið, að þau réttindi, sem Vatnsfjarðarkirkja hefir til uppsáturstolla af landinu, haldist óbreytt.
Það er mjög nauðsynlegt fyrir bæi og þorp að eignast lönd nálægt mannvirkjum þeim, sem reist eru til almenningsþarfa, enda hefir þingið skilið þessa þörf og jafnan vikizt vel við, er til þess hefir verið leitað um slík mál. Vona ég, að svo verði enn, og sé því ekki ástæðu til að orðlengja frekar um málið, en læt þessa framsögu nægja fyrir báðum þessum frv. mínum. óska ég svo, að bæði málin fái að ganga til 2. umr., og geri að till. minni, að þeim verði vísað til hv. allshn. að þessari umr. lokinni.