19.03.1932
Neðri deild: 33. fundur, 45. löggjafarþing.
Sjá dálk 1421 í B-deild Alþingistíðinda. (1199)
181. mál, aðför
Frsm. (Magnús Guðmundsson):
Þetta litla frv. gengur í þá átt að hækka nokkuð þá upphæð, sem skuldunautur má taka frá, þegar aðför er gerð. Núgildandi lög um þetta efni eru frá árinu 1887, og hefir auðvitað verðgildi peninga mjög mikið breytzt síðan. Þar af leiðir, að sú upphæð sem þá var leyft að undanskilja fjárnámi, er nú orðin hlægilega lág. Það er ekki mikið hægt að taka frá af nauðsynjum fyrir 120 kr., þegar um heimilisföður er að ræða, og fyrir 20 kr., þegar um mann er að ræða, sem ekki hefir fyrir heimili að sjá. Er því nauðsynlegt að færa þessar upphæðir í samræmi við það verðlag, sem nú er. N. hefir orðið ásatt um að leggja til, að þeir, sem ekki hafa fyrir heimili að sjá, megi undanskilja fjárnámi 100 kr. virði, en heimilisfeður 500 kr. virði, og auk þess 100 kr. fyrir hvert barn, sem hlutaðeigandi hefir á framfæri. Þar að auki er gert ráð fyrir bæði í núgildandi lögum og frv., að skuldunautur megi halda eftir sængurfötum og öðrum nauðsynlegum fatnaði.
Það getur verið álitamál, hvað langt eigi að ganga í þessu efni og hvort n. fer nægilega langt með þessu frv. Um það má alltaf deila.
Ástæðan til þess, að n. ber þetta frv. fram nú, er sú, að málið var tekið til athugunar á nýafstöðnu búnaðarþingi. Þar var ákveðið að leggja til, að frv., sem gengur nokkuð lengra en þetta, yrði lagt fyrir Alþingi. En landbn. sá sér ekki fært að fara lengra en hér er gert ráð fyrir. Jafnframt leggur n. til, að við aðför vegna skatta og opinberra gjalda skuli ákvæði frv. ekki gilda, eins og er eftir gildandi lögum.