03.03.1932
Neðri deild: 19. fundur, 45. löggjafarþing.
Sjá dálk 1436 í B-deild Alþingistíðinda. (1238)

55. mál, ríkisskattanefnd

Hannes Jónsson:

Hæstv. fjmrh. var að tala um undarleg gleraugu, sem hann taldi hv. þm. Borgf. lesa frv. þetta með, gleraugu, sem svo mjög villtu honum sýn, að hann sæi í raun og veru allt annað en það rétta. Ég fyrir mitt leyti held, að hæstv. fjmrh. ætti sem minnst að tala um slík gleraugu, því að ég fæ ekki betur séð en að hann hafi sjálfur einhver undarleg gleraugu, þegar hann horfir á ríkissjóðinn, og mér er næst að halda, að þau séu á hann veg, að annað augað sé smækkunargler, en hitt stækkunargler Smækkunarglerið virðist hæstv. ráðh. svo nota, þegar hann lítur á gjöldin, en stækkunarglerið aftur, þegar hann lítur á tekjurnar, og sem dæmi þess má nefna fjárlagafrv. það, sem nú liggur fyrir, því að það er öldungis víst, að tekjur þær, sem þar eru áætlaðar, ná engri átt, — svo ríflega eru þær áætlaðar.

Í frv. þessu er gert ráð fyrir 1000 kr. til hvers nm. hér er ekki vafi á, að hæstv. ráðh. hefir horft í gegnum smækkunarglerið, þegar hann ávað þessa upphæð, þar sem hann ætlar mönnum þessum að ferðast um landið og leiðbeina og samræma skattinn. Annars vil ég benda hæstv. ráðh. á, að það er ekki svo þægilegt að finna út þetta samræmi, sem hann er alltaf að tala um, því að hann getur ímyndað sér, að eins og t. d. sauðfé og nautpeningur er ekki alstaðar á landinu í sama verðgildi, eins hlýtur skattaálagning að vera misjöfn í hinum ýmsu landshlutum. Það þarf því ekki að láta sér detta í hug, að þetta sé eins einfalt mál eins og sumir ætla, og ég veit hreint ekki, hvort það verður til að draga úr kostnaðinum við þetta eftirlit, að láta þá, sem eiga að hafa það á hendi, vera héðan úr Reykjavík, því að reynslan hefir sýnt, að Reykvíkingar kunna að búa út reikninga engu síður en aðrir. Þannig man ég t. d. eftir einum ferðakostnaðarreikningi, þar sem ferðakostnaðurinn var reiknaður 100 kr. á dag, og þar sem ferðin stóð yfir í 50 daga, þá geta allir séð, hvort reikningurinn hefir ekki verið allálitlegur. Þó að menn þeir, sem frv. þetta ræðir um, reikni sér nú ekki 100 kr. á dag, þá býst ég samt við, að ferðakostnaður þeirra verði þó alltaf eitthvað hærri en launin.

Þó að landsskattanefnd þessi verði nú sett á laggirnar, þá fæ ég ekki séð, að nein trygging sé fyrir því, að fullt samræmi fáist á milli skattaálagninga alstaðar á landinu, því að til þess yrðu að koma fram kærur sem víðast að, því að ef hún ætti að gera þetta án þess, yrði kostnaðurinn við hana miklu meira en gert hefir verið ráð fyrir. Ég hygg því, að úr þessu verði ekki bætt á þennan hátt, ef stjórnarráðið treystir sér ekki til þess að hafa á hendi úrskurðarvald í þessum málum, þá verði að leita annara úrræða en þessara.

Eins og ég er búinn að taka fram, þá sé ég ekki ástæðu til á þessum tímum að bera fram slíkar kröfur sem þessar, og mér finnst, að það ætti frekar að vera verkefni hæstv. fjmrh. að bera fram tilIögur; sem draga úr útgjöldum ríkissjóðs, heldur en bera fram till., sem miða að því að auka nýjar álögur. Að þessu öllu athuguðu mun ég ekki greiða atkv. með frv.