03.03.1932
Neðri deild: 19. fundur, 45. löggjafarþing.
Sjá dálk 1438 í B-deild Alþingistíðinda. (1240)
55. mál, ríkisskattanefnd
Magnús Guðmundsson:
Ég get sagt það, að mér þykir hressandi að heyra hv. þm. V.-Húnv. segja stj. til syndanna, en hv. þm. hefði átt að gera það fyrr, og ef hann vill vera réttlátur í skeytum sínum, þá á hann að senda miklu fleiri og stærri skot. — og þá jafnframt í aðrar áttir.
Að því er snertir svo hæstv. fjmrh., þá líka mér þau vel. Það er alveg rétt að ákveða í fjárl., hve miklu fé má verja í þessu skyni, en það verður jafnframt að fara eftir því. En eins og kunnugt er, hefir viljað verða misbrestur á því nú á síðari árum, að farið væri eftir ákvæðum fjárl., en um það saka ég ekki hæstv. núv. fjmrh., því að hann hefir skemmstan tímann farið með völdin.
Laun nm., 1000 kr. til hvers, sé ég ekki ástæðu til að gera sérstaklega að umtalsefni, en ég vil endurtaka það, sem ég sagði áðan, að ég tel ekki rétt að bæta útgjöldum á ríkissjóð eins og nú standa sakir, og í því efni er ég á móti hæstv. fjmrh., þó að ég hinsvegar viðurkenni, að 3000 kr. gera ekki mikið, hvorki til né frá.
Verði það úr, að n. þessi taki til starfa, þá er það alveg rétt, að hún taki fyrir dálítil svæði af landinu árlega, en ákveði ekki fyrirfram, hvaða svæði verði tekin það og það árið.