05.05.1932
Efri deild: 68. fundur, 45. löggjafarþing.
Sjá dálk 449 í B-deild Alþingistíðinda. (126)

1. mál, fjárlög 1933

Frsm. (Einar Árnason):

Þegar fjárlfrv. kom hingað að þessu sinni frá Nd., mun tekjuhallinn á því hafa verið um 425 þús. kr. Slík var niðurstaðan þrátt fyrir það, þótt fjvn. Nd. hafi verið sammála um og lagt mikla vinnu í að reyna að spara útgjöldin, svo sem hægt væri, enda ætla ég, að sá svipur, sem nú er á fjárlagafrv., hafi aðallega verið settur á það af fjvn. En vegna þessa tekjuhalla, sem n. sá fram á, að mundi verða á frv., hefir hún flutt sérstakt frv. um bráðabirgðabreyt. nokkurra l., og er efni þess frv. að fella niður nokkra útgjaldaliði, sem bundnir eru með sérstökum lögum. Er gert ráð fyrir því, að ef þetta frv. verði samþ., muni útgjöldin á fjárlagafrv. lækka um 400 þús. kr. sé þetta tekið með í reikninginn, er hægt að segja, að fjárlagafrv. sé skilað að mestu leyti tekjuhallalausu, en þess er þó að gæta, að í frv. vantar einn stóran útgjaldalið, sem ekki verður komizt hjá að greiða, því að nauðsynlegt er að hækka framlagið til Eimskipafél. allverulega frá því, sem er í frv. Þá hefir og ekki verið ætlað í frv. fyrir nauðsynlegum umframgreiðslum samkv. sérstökum 1. og þáltill., en þessar umframgreiðslur geta hlaupið á allstórum upphæðum. Má að vísu gera ráð fyrir því í venjulegu árferði, að þessum umframgreiðslum geti mætt auknar tekjur ríkissjóðs, ef tekjuhliðin er varlega áætluð, en eins og fjárhagsútlitið er nú og afkoma atvinnuveganna, er ekki hægt að gera sér vonir um auknar tekjur til handa ríkissjóði frá því, sem áætlað er í frv., og er þess vegna meiri ástæða til að gera allt, sem hægt er, til að halda útgjöldunum niðri. — Um meðferð n. á frv. og till. hennar er það að segja, að þær eru að mestu leyti mótaðar af því ástandi, sem er, og hljóta þannig að nokkru leyti að falla í sama farveg og till. fjvn. Nd. N. hefir neyðzt til að bera fram nokkrar hækkunartill., sem flestar leika á lágum upphæðum, en tvær þeirra eru þó allstórar upphæðir, og geri ég ráð fyrir því, að. n. muni óska eftir, að atkvgr. um þær bíði til 3. umr., og vík ég nánar að því síðar. Jafnframt hefir n. reynt að gera tilraun til að draga úr útgjöldunum. Nemur þetta að vísu ekki miklum upphæðum, því að svo er nú búið að ganga nærri flestum útgjaldaliðum frv., en n. vildi þó sýna deildinni þessar brtt., ekki af því, að n. sé ekki ljóst, að þessar till. kunna að orka meira og minna tvímælis, né heldur af því, að n. sé það nokkur sérstök gleði að leggja til niðurfellingar á ýmsum liðum, en það er nú svo, að gera verður fleira en það eitt„sem gott þykir, þegar fjárhagsvandræðin eru annars vegar. Hækkunartill. n. nema samtals um 190000 kr., en lækkunartill. um 120000 kr., og er því hækkunin umfram lækkun um 70000 kr. samkv. till. n., og tekjuhallinn á frv. samkv. því um 495000 kr. alls. — ég hefi áður drepið á frv. fjvn. Nd. um bráðabirgðabreyt. nokkurra 1., og verði það samþ., má gera ráð fyrir, að við það lækki útgjöldin um 400000 kr., en eins og ég áður sagði, er sjáanlegt, að þegar fjárl. verða afgreidd héðan úr d., getur hallinn ekki orðið minni en 1/2 millj., og verður þó sennilega meiri, og verður því afgreiðsla fjárlaganna að þessu sinni sú, að skilizt er við þau með töluverðum tekjuhalla. Í slíku árferði sem þessu er þetta óglæsileg afgreiðsla á fjárlögum, en að mínu áliti má rétta þetta við með því að samþ. einhver þau tekjuaukafrv., sem fyrir þinginu liggja. Lít ég svo á, að þetta megi verða, án þess að það komi tilfinnanlega niður á þjóðinni, og væri þá þannig hægt að jafna halla, sem útlit er fyrir, að verði á fjárlagafrv.

Þá vil ég fyrir f. h. n. minnast nokkrum orðum á þær brtt., sem hún flytur, en meginið af þeim eru þannig vaxnar, að þær skýra sig sjálfar, og þarf ég því ekki að vera langorður. N. lítur svo á, að þær till., sem hún gerir um niðurfellingu á útgjöldum ríkisins, séu í alla staði forsvaranlegar, en auðvitað er það í sjálfsvaldi d., hvort hún vill ganga inn á að fella niður þessi útgjöld, sem n. gerir till. um og ríkissjóður getur komizt hjá að greiða. Ég vil þó aðeins minna hv. d. á ráð, að að því verður óumflýjanlega að gæta, þegar verið er að samþ. útgjöld fyrir ríkissjóð, að peningar séu fyrir hendi til þess að greiða þessi útgjöld.

Brtt. n. eru á þskj. 597, og fjallar sú fyrsta þeirra um það, að framlagið til landhelgisgæzlunnar sé hækkað um 50000 kr. — Svo er ráð fyrir gert í frv., að landhelgisgæzlan kosti um 500000 kr., og greiðist það að 3/5 úr ríkissjóði, en 2/5 úr landhelgissjóði. Reynslan um landhelgisgæzluna hefir hinsvegar sýnt það, að þessi upphæð muni vera of lágt áætluð, og af þeim ástæðum leggur n. til, að hún verði hækkuð um 50000 kr., og komi sú hækkun á landhelgissjóð, þannig að úr honum greiðist 250000 kr. í þessu skyni í stað 200000 kr. í frv. Hefir n. fengið upplýsingar um það, að landhelgissjóði muni ekki vera um megn að greiða þetta, og því hefir hún kosið að fara þessa leið. Má frekar gera sér vonir um það, að þessi upphæð, sem veitt er til landhelgisgæzlunnar, hrökkvi langt í því skyni, ef þessi hækkun nær fram að ganga.

Næsta brtt. n. er á þskj. 612, II, og er ástæðan til þess sú, að þessi till. hafði í ógáti fallið niður, er n. skilaði till. sínum í skrifstofuna. Fjalla till. um það, að utanfararstyrkur héraðslækna sé aftur tekinn upp í fjárlögin, en styrkurinn var felldur niður í Nd., því að hann var upphaflega í frv., eins og það var frá hendi stj. Eftir till. n. fylgja styrknum sömu aths. og við hann eru í gildandi fjárlöglull. Kom landlæknir á fund n. og mæltist eindregið til þess, að styrkurinn væri tekinn aftur upp í frv. og fellst n. á að verða við þeim tilmælum. — N. flytur og aðra till. samkv. eindregnum tilmælum landlæknis, 597,2b, þess efnis, að veittar verði 3500 kr. til þess að kaupa ferða-röntgentæki. Svo sem öllum er kunnugt, er berklaveikin sá vágestur, sem við eigum mjög erfiða aðstöðu gegn. Þrátt fyrir allt það fé, sem þjóðin hefir lagt á sig til þess að vinna bug á þessum skæða óvin, þá virðist það hafa gengið hægt í áttina. Það eru staðir hér á landi, þar sem berklaveikin hefir grafið alvarlega um sig, og landlæknir telur nauðsynlegt að gera einhverjar tilraunir til nákvæmari athugana en hægt hefir verið að gera hingað til og þarf til þess sérstaklega færa lækna. En hann telur, að þeir geti ekki notið sín, nema með því að þeir fái þau tæki, sem nauðsynleg eru til slíkra rannsókna, og þá verða það að vera tæki, sem læknar geta flutt með sér og sem brtt. kallar ferðaröntgentæki. N. vonar, að d. geti fallizt á þessa till.

Þá hefir n. lagt til, að styrkur til læknisbústaða verði lækkaður úr 15 þús. kr. niður í 8 þús. kr. Það er vitanlega gert til að spara og líka til að benda á, að í slíku árferði sem þessu sé ekki gerlegt að leggja út í nýjar byggingar af þessu tagi. þess vegna telur n., að vel megi lækka þennan lið, en vili þó ekki fella hann niður, ef einhverjir læknisbústaðir kynnu að vera ofullgerðir.

Hjúkrunarfélagið „Líkn“, sem starfað hefir hér um langan tíma í Rvík, hefir haft í undanförnum fjárl. 4 þús. kr., en nú hefir sá styrkur verið lækkaður niður í 3 þús. kr. Félagið hefir mjög merkilegt starf með höndum og mun gera mikið gagn. N. vill viðurkenna félagið með því að hækka fjárveitinguna aftur upp í 4 hús. kr. eins og hún er í gildandi fjárl. og hefir verið undanfarið.

Þá hefir n. lagt til við 13. gr., að liðurinn til sýsluvega verði lækkaður um 5 þús. kr. Um þetta er ekkert að segja annað en það, að þetta er sparnaðartill. frá n. hálfu, og d. getur auðvitað hagað sér gagnvart henni eins og hún telur réttast.

Þá er hér 5. brtt., um að breyta aths., sem sett hefir verið við styrkinn til strandferða, um launagreiðslur yfirmanna strandferðaskipanna. N. fannst aths. vera fullþröng og að það gæti valdið vandræðum að framfylgja henni bókstaflega, og þess vegna opnar n. með brtt. leið til þess, að samkomulag geti náðst, jafnvel þó ekki séu eins ströng fyrirmælin eins og er í aths. eins og hún er nú orðuð. Þá kem ég að 6. brtt. það er styrkur til Eimskipafél. Ísl. N. hefir lagt til, að hann sé hækkaður mikið frá því, sem er í frv., en hún tekur brtt. aftur til:1. umr. til nánari athugunar.

Þá er hér 7. brtt., við 4. gr., um kostnað af skólastjórn Menntaskólans. N. telur, að þessi liður hafi verið lækkaður ósanngjarnlega mikið, þar sem hann hefir verið lækkaður úr 2 þús. kr. niður í 1 þús. kr. og vilji fara þar mitt á milli og leggur til, að liðurinn verði lækkaður um 500 kr. það eru færð nánari rök fyrir þessum lið í nál., og sleppi ég því nú.

Næsta brtt. er um að taka upp 1500 kr. til utanfara barnakennara. N. hefir tekið þennan lið upp samkv. eindreginni ósk hæstv. fjmrh.

Þá er hér brtt. frá n. við 14. gr., um blindrakennslu. Að vísu hefir n. ekki breytt neitt fjárveitingunni frá því, sem er í frv., en hún leggur til, að liðurinn allur verði sameinaður í eitt og upphæðin, 2600 kr., gangi til Blindravinafél. Ísl. Þetta félag mun hafa verið stofnað fyrir skömmu í Rvík. Það hefir sent fjvn. erindi þess efnis að fá 1500 kr. styrk til starfsemi sinnar og einnig, að félagið fái umráð yfir því fé, sem veitt hefir verið í fjárl. til blindrakennslu. Þetta félag er þegar orðið mannmargt, um 800 félagar, og tilgangurinn að reyna að hjálpa og hlynna að blindum mönnum hér á landi. Félagsmenn greiða í ársgjald 2 kr., en svo geta menn orðið æfifélagar með 30 kr. framlagi. f stj. félagsins eru: Sig. Sivertsen prófessor, forstöðumaður málleysingjaskólans, skólastjóri nýja barnaskólans, Halldóra Bjarnadóttir og Þorsteinn Bjarnason í Körfugerðinni, sem hefir með höndum kennslu blindra manna. N. telur rétt að játa þennan styrk, sem er í frv., ganga til Blindravinafél. og telur, að þá sé fjárveitingin í góðum höndum.

Þá hefir n. lagt til að hækka um 300 kr. við aðstoðarmanninn við Landsbókasafnið frá því, sem er í frv. Í gildandi fjárl. munu hafa verið ætlaðar 4500 kr. til aðstoðarmannsins, en þetta hefir verið lækkað niður í 3500 kr. N. þykir þetta of mikil lækkun. Hér er um fátækan mann að ræða, sem hefir fyrir mörgum að sjá. N. virðist ósanngjarnt samanborið við aðra starfsmenn að lækka hér svo mikið og vill færa þetta í samræmi við aðrar lækkanir hjá öðrum starfsmönnum og leggur því til, að í staðinn fyrir 3500 kr. komi 3800.

Þá er hér 11. brtt., um að inn í 15. gr. komi nýr liður til Snorrabókasafns í Reykholti, 500 kr. Fyrir n. lá umsókn um styrk til þessa bókasafns. Þetta er nýtt fyrirtæki og er hugsað á þann veg, að á þessum fornfræga stað verði í sambandi við skólann safnað öllum þeim bókum og verkum, sem að einhverju leyti snerta Snorra Sturluson, bæði utan lands og innan. Það hafa ýmsir tekið að sér að safna til þessa safns og styðja það, bæði á Norðurlöndum og víðar, auk þess sem menn gangast fyrir þessu innanlands. Nú hefir verið sótt um 500 kr. styrk til þessa safns. Fjvn. hefir með því að setja liðinn á þennan stað í frv. viljað sýna, að hún setur ekki þetta safn í sömu röð og önnur bókasöfn á landinu, heldur ætlast hún til, að ríkið viðurkenni í eitt skipti fyrir öll þessa stofnun, sem verið er að koma upp, og telur hana að miklu leyti heyra til sögulegra minninga og setur hana þess vegna á eftir styrknum, sem veittur er til Sögufélagsins, þó þetta komi Sögufélaginu vitanlega ekkert við. — Þá hefir n. lagt til, að sú aths., sem sett var í Nd. við styrkinn til Leikfélagsins, falli burt, og sú kona, sem þar um ræðir, Soffía Guðlaugsdóttir, fái sinn styrk alveg sérstaklega. N. taldi ekki rétt að rýra frekar þennan styrk, sem Leikfélagið átti að fá, þar sem hann hefir verið lækkaður úr 15 þús. kr. niður í 4 þús. kr.

Þá eru hér þrjár brtt., sem ýmist eru til lækkunar eða niðurfellingar. það er lagt til, að styrkur til Halldórs Kiljans Laxness sé lækkaður úr 1600 kr. niður í 1000 kr. og að styrkurinn til Þórbergs Þórðarsonar falli burt, af þeirri ástæðu, að n. var ekki kunnugt um starf hans, hvort hann heldur áfram þeirri orðasöfnun, sem hann upphaflega fékk styrkinn fyrir. — Þá er einnig lagt til, að fella niðstyrkinn til Skáksambands Íslands.

Þá kem ég að 16. brtt., sem er gjald samkv. jarðræktarlögum, þar sem n. leggur til, að útgjöld samkv. þeim verði lækkuð úr 540 þús. kr. niður í 450 þús. kr. Þessi upphæð er vitanlega áætlunarupphæð. Það er ekki hægt að fullyrða neitt um það, hvað mikla upphæð þarf í til þess að fullnægja l. En n. telur líkur til þess, að á þessum erfiðu tímum, sem nú eru fyrir landbúnaðinn, hljóti það að minnka, sem bændur geta framkvæmt af nýjum jarðabótum, og þess vegna hljóti þessi styrkur að lækka talsvert frá því, sem hefir verið undanfarin ár. En til frekara öryggis, að þessi lækkun sé forsvaranleg, hefir n. gert ráð fyrir að bera fram brtt. við það frv., sem ég hefi áður minnzt á, um bráðabirgðabreyt. nokkurra laga, að hámarksupphæðir til einstakra jarðabótamanna samkv. jarðræktarl. verði lækkaðar. Hinsvegar telur n. nauðsynlegt að taka upp aftur nokkra upphæð vegna ráðstafana um tilbúinn áburð. Það mun vera nauðsynlegt að reyna að létta undir með flutninga tel ýmsra erfiðra hafna á landinu, og vill n. þess vegna taka upp fasta upphæð, sem verði hámark þess, sem notað verður.

Þá eru hér 2 brtt. mjög smáar. Fyrri brtt. er um það, að veita veiði- og loðdýrafél. Ísl. 500 kr., en hin síðari um að veita Ársæli Árnasyni 500 kr. til innflutnings á grænlenzkum hérum. N. vill ekki neita því, að loðdýrarækt geti komið að einhverju liði hér á landi, þegar fram líða stundir. Jafnframt telur n., að það sé vel gerlegt að veita svolitla upphæð til að gera tilraun til að gera dýralífið fjölskrúðugra hér á landi en nú er. Þessar upphæðir eru svo smávægilegar, að það munar ekki mikið um þær, en þær geta vel gert mikið gagn og ánægju.

Þá hefir n. lagt til, að styrkurinn til skrifstofukostnaðar skipaskoðunarstjóra hækki úr 6000 kr. upp í 7000 kr. Eftir heim upplýsingum, sem n. hefir fengið, eru engar líkur til, að 6 þús. kr. nægi, geti jafnvel þurft 8 þús. kr.

Þá leggur n. til, að liðurinn um markaðsleit falli niður. Það er álit n., að miklu af því fé, sem ætlað hefir verið til markaðsleita, hafi verið varið til lítils gagns.

Þá hefir n. lagt til, að aths. við styrkinn til Samb. ísl. heimilisiðnaðarfél. falli burt. Þessi aths. er um það, að Geir Þormar séu veittar 800 kr. af styrk félagsins. 1. telur sjálfsagt að binda ekki styrkinn þessari kvöð, heldur að félagið hafi full umráð yfir honum og veiti þessum manni styrk, ef því finnst það nauðsynlegt. Fjvn., getur ekkert sagt um það, hvað mikið gagn er af starfsemi þessa manns.

Þá koma hér liðir, þar sem felldar eru niður styrkveitingar, sem lengi hafa staðið í fjárl. til ýmsra kvenfélaga. Ég get farið hér fljótt yfir sögu og tekið alla þessa liði í einu. Það hlýtur eitt og sama að ganga yfir þá alla. Mér dettur ekki í hug að halda því fram, að það sé svo ýkja mikil upphæð, sem hér er um að ræða fyrir ríkissjóð. En ég held, að þessi upphæð í heild komi að litlum notum, þegar hún er bituð í jafn smáar upphæðir sem gert er í frv. Ég vil taka það fram, að það virðist vera orðin tízka hér á landi að setja á stofn allskonar félög til allskonar starfsemi og svo þurfa þau undireins að koma til ríkissjóðs og fá styrk, án þess að hægt sé um það að vita, hvort nokkuð gagn sé að þessum félögum eða ekki. Ég geri ráð fyrir, að þessum félögum geti fjölgað mjög mikið ennþá og þess vegna geti þessum liðum í fjárl. fjölgað í framtíðinni. Þess vegna vill n. nú í eitt skipti fyrir öll leggja það fyrir d., hvort hún telur rétt, að þessu sé haldið áfram eða ekki.

Þá leggur n. til, að fjárframlag til Þórðar Flóventssonar falli niður. Þessi styrkur hefir staðið undanfarin ár í fjárl. og það fylgt, að hann ætti að leiðbeina um lax- og silungaklak. N. álítur, að þessu starfi sé nú lokið og leggur því til, að ekki sé lagt fé til þess lengur í fjárl.

Þá kem ég að brtt. við 17. gr. N. leggur þar til, að allur síðari hl. gr. falli niður. Þetta eru margir liðir, og ég ætla ekki að fara út í þá, hvern einasta fyrir sig. Ég vil taka það fram, að hér er ekki um miklu fjárhæð að ræða, nokkur þús. kr. samtals, veittar í marga staði, frá 200 kr. upp í 500 kr. í stað. Þetta eru veitingar til ýmsra sjúkra- og styrktarfélaga í landinu. En sá er gallinn á þessu, að jafnvel þó að þessi félög kunni að eiga einhvern rétt á að fá styrk, þá er ekki hægt að neita því, að það eru miklu fleiri félög í landinu, sem þá eiga rétt á því, en fá ekkert. Þess vegna lítur n. svo á, að ef þessi félög eiga að standa áfram í fjárl., þá sé óhjákvæmilegt að sinna þeim beiðnum, sem hafa komið frá öðrum félögum og munu koma fram. N. getur ekki seð, að þessi félög eigi nein forréttindi fram yfir önnur félög í landinu, og þess vegna leggur hún til, að þessir liðir verði felldir niður. Ég veit ekki til, að þessi félög hafi nokkurn tíma sent ríkissjóði skýrslur um starfsemi sína og þess vegna hefir þingið veitt þetta út í bláinn án þess að hafa nokkra hugmynd um, hvernig fénu hefir verið varið. Í gildandi fjárlögum eru sett þau skilyrði fyrir ríkissjóðsstyrknum, að jafnmikið fé komi á móti annarsstaðar að og að skýrsla um starfið væri send stjórninni. Ég held, að þetta hafi hvergi verið gert.

Þá er brtt. frá n., um að niður falli 23. og 24. liður 17. gr.; er það styrkur til gamalmennahæla á Ísafirði og Seyðisfirði, 1000 kr. til hvors. En nú er vitanlegt, að til er þriðja og langstærsta stofnunin af þessu tagi, sem er gamalmennahælið í Rvík og að í frv. er því enginn styrkur ætlaður. N. lítur svo á, að annaðhvort sé rétt að styrkja þessi hæli öll eða ekkert. Það getur verið, að aðrir líti öðruvísi á það mal, en þetta er skoðun n., og samræmis vegna leggur hún til, að þessi styrkveiting verði felld niður.

Um brtt. n. við 18. gr. get ég verið fáorður. Ég skal aðeins geta þess, að við 28. brtt. á þskj. 597 er brtt. frá hv. 3. landsk. N. öll eða meiri hl. hennar getur fallizt á þá brtt. og þarf því eigi meira um hana að ræða.

Þá eru 2 brtt., sem n. á við 22. gr. frv. Eru þær um það, að fella niður heimildir er staðið hafa í þessari gr. í fjárl. áður og eru nú í frv. Sú fyrri er heimild til að greiða S. t. S. halla, er verða kann af tilraunum með útflutning á frystu kjöti. N. lítur svo á, að tilraun þessari sé nú lokið og þessi útflutningur kominn í svo fast horf, að rétt sé að fella þessa styrkheimild niður. — N. vill líka fella niður 4. liðinn í 22. gr. Er það heimild fyrir ríkisstj. til að takast á hendur ábyrgð fyrir samvinnufélag sjómanna á Seyðisfirði. Með till. sinni um þetta vill n. undirstrika þann skilning sinn, án ekki sé rétt, að ríkið taki ábyrgð á sjávarútgerð, hvort heldur um hlutafélög, einstaka menn eða samvinnufélög er að ræða. N. litur svo á, að þó félagið heiti samvinnufélag, ha veiti það engan forgangsrétt að ábyrgð frá ríkinu. Vill n. afmarka þá stefnu sína með þessari brtt:

Ég hefi þá minnzt á allar brtt. n. nema eina, sem er á þskj. 627. Er hún um styrk, sem Jóni Blöndal og Jóni Gauta Jónatanssyni er ætlaður í 14. gr. frv. — Í frv. er gert ráð fyrir því, að veittar séu til menntamalaráðs 8 þús. kr., sem það svo ráðstafar í utanfararstyrki. En í Nd. var þessum 2 mönnum bætt við sérstökum. N. litur svo á, að þessir menn geti eins vel fallið undir hann styrk, sem menntamálaráðið úthlutar, og aðrir, og leggur því til, að menntamálaráðið veiti þann styrk, sem þessum 2 mönnum var ætlaður, af þeim 8 þús. kr., er það fær.

Ég skal svo eigi fjölyrða meira um þetta. En um þær brtt. aðrar, er fram hafa komið, mun ég geyma mér að tala, þar til hv. flm. þeirra hafa skýrt þær betur.