23.03.1932
Neðri deild: 36. fundur, 45. löggjafarþing.
Sjá dálk 1468 í B-deild Alþingistíðinda. (1288)
169. mál, verksmiðja til bræðslu síldar
Pétur Ottesen:
Ég vildi aðeins benda hv. sjútvn., sem að sjálfsögðu fær málið til meðferðar, á það, að á fiskiþinginu, sem haldið var í vetur, voru samþ. till. í þá átt, að Fiskifélag Íslands fengi að skipa einn mann í stj. síldarbræðsluverksmiðjunnar, þann, sem Síldareinkasala Íslands skiþaði áður. Mælist ég til þess við hv. sjútvn., að hún taki þetta til athugunar, þegar hún fer að ræða málið.