14.04.1932
Neðri deild: 51. fundur, 45. löggjafarþing.
Sjá dálk 1477 í B-deild Alþingistíðinda. (1323)

27. mál, forkaupréttur kaupstaða á hafnarmannvirkjum o.fl.

Sveinbjörn Högnason:

Ég vil spyrja hv. 1. þm. S.-M. að því, þar sem hann segir það ógreiða fyrir bæjarfélögin að fá þessa löggjöf, hvort hann álíti það ógreiða fyrir hreppsfélögin úti um land að hafa forkaupsrétt að jörðum innan hreppsins. (SvÓ: heir eru ekki að auglýsa það fyrirfram). Það skiptir ekki miklu máli. — Þá er það rangt athugað hjá hv. þm., að forkaupsréttarlögin frá 1926 ættu að falla í burt um leið og þetta yrði að lögum. Þarf ég ekki að fara frekar orðum um það; slíkt felst hvergi í þessu frv.

Viðvíkjandi því, sem hv. samþm. minn sagði, að sér hefði þótt óþarfi að rifja upp gamlar væringar okkar frá kosningafundum eystra, læt ég þess getið, að ég hefði ekki gert það, ef hann hefð , ekki byrjað. Ættum við að geyma okkur púður það þangað til við hittumst aftur á heim vettvangi. Um uppeldi mitt er það að segja, að ég skammast mín ekki fyrir það, hvorki fyrir honum né öðrum og henda slíkar hnútur sem hans í þessum efnum frekar til þess, að eitthvað vanti í andlegt uppeldi þess, sem kastar heim, svo að ekki sé harðar að orði kveðið. Vil ég svo ekki deila við hann um slíka hluti.