05.05.1932
Efri deild: 68. fundur, 45. löggjafarþing.
Sjá dálk 477 í B-deild Alþingistíðinda. (133)
1. mál, fjárlög 1933
Jakob Möller [óyfirl.]:
Áður en ég tala um brtt. mínar, verð ég að víkja örfáum orðum til hv. 2. landsk. út frá því, sem hann sagði um brtt. hv. fjvn., þótt það sé reyndar óþarfi fyrir mig að hlaupa þar fram fyrir skjöldu. En mér þykir þó rétt að vekja athygli á því, þegar hv. þm. brýnir þá menn svo mjög, er halda því fram, að rétt sé að lækka styrk til rithöf., eða fella hann niður, að hann gerir sér ómak að grafa upp í gömlum Alþt. gömul ummæli og lesa þau upp. — Hv. fjvn. getur vitanlega ekki farið eftir neinu öðru en því, hvað henni sjálfri finnst vert að vera styrkt. Svo hefir það verið fyrr og síðar. Ég verð að segja, að ég get ekki fellt mig við hann samanburð, sem hv. þm. gerði á Þorsteini Erlingssyni og heim tveim mönnum, sem hér um ræðir. Ég fyrir mitt leyti get ekki borið hann saman við slíka menn sem Halldór Kiljan Laxness og Þorberg Þórðarson, án þess ég vilji dæma há. En þegar um ákvörðun skáldastyrks er að ræða, þá verður hver að fara eftir sínu áliti. Það er of há krafa, sem hv. 2. landsk. gerir, að ætlazt til þess, að allir fari eftir áliti hans, þó hann telji það gott og blessað. — Ef þessir menn skrifa og skálda svo, að ég vil helzt ekki sjá ráð, þá hlýt ég fyrir mitt leyti að mótmæla slíkri bókaútgáfu.
Áður en ég minnist á brtt. mínar á þskj. 612, vil ég stuttlega minnast á þá till hv. fjvn. á þskj. 627, sem er þess efnis, að námsstyrkur til tveggja stúdenta, sem nú erti með sérstaka fjárveitingu í fjárlfrv., verði fluttur til og tekinn af fjárhæð þeirri, 8 þús. kr., sem menntamálaráði er ætlaður til ákvörðunar. — Það stendur nú svipað á með þessa styrki og þá, sem ég geri till. um á þskj. 612. Ég get búizt við því, að hv. fjvn. vilji fara eins með þá og þessa styrki, að taka þá af því fé, er menntamálaráðið fær til úthlutunar. En inn á þá breyt. er ekki hægt að ganga. Svo er nú ástatt með Jón Blöndal, að hann hefir notið styrks frá menntamálaráði tilsettan tíma, eða 4 ár. Það er því fyrir það byggt, að hann geti, eftir reglum heim, er gilda um styrk frá menntamálaráði, fengið þar áfram styrk, enda mundi slíkt útiloka nýja menn frá slíkum styrk. — Ég veit ekki, hvort hinn stúdentinn, Jón Gauti Jónatansson, hefir notið styrks. Þótt ég viðurkenni, að það sé rétt stefna að láta menntamálaráðið úthluta þeim styrk, sem veittur er í þessu skyni, þá getur þó svo staðið á, að nauðsynlegt sé að veita efnilegum mönnum styrk til að ljúka námi, þegar þeir hafa notið styrks frá menntamálaráði tilsettan tíma, en eigi getað lokið námi af einhverjum gildum ástæðum, enda er þá rangt að taka bitann frá munni nýrra stúdenta til að bæta við hina. Er þá sjálfsagt að veita sérstakan styrk til að ljúka námi. Sama er og að segja, þegar svo er ástatt, að menntamálaráðið getur ekki fallizt á að veita styrk í vissu augnámiði, svo sem nú er ástatt um Jón Gizurarson. Menntamálaráðið hefir ekki getað fallizt á, að það nám, er hann stundar, væri þess vert, að honum væri veittur styrkur til að stunda það. Það er vitanlegt, að hann fær þar ekki styrk. En það getur þó eigi verið fyrir það, að of mikið sé til af mönnum, sem notið hafa slíkrar menntunar á þessu sviði. Þetta verður eini maðurinn á landinu, sem stundað hefir verzlunarfræði við háskóla. hér er nú svo ástatt, að enginn þeirra kennara, er starfa við verzlunarskólann, hefir þessa þekkingu eða nám að baki sér. Því er nauðsynlegt að fá slíkan menntamann, þótt menntamálaráðið hafi ekki skilið það. Þessi hv. d. fellst á það á sumarþinginu að veita þennan styrk til verzlunarnáms Jóns Gizurarsonar. Vænti ég þess, að hún fallist á að halda honum áfram, þar til hann hefir lokið námi.
Líkt þessu er því farið með næstu till. mína. Yngvi Pálsson sótti um styrk til menntamálaráðs, en fekk hann ekki.
Styrkurinn er áætlaður til vélfræðináms í Þýzkalandi. Yngvi er stúdent og er að upplagi svo hneigður fyrir þetta nám, að slíks munu fá dæmi. Það er sagt um hann, að hann hafi mjög snemma verið svo hneigður að þessu námi, að hann hafi sem unglingur eða barn gert líkan af rafvél og fleira þessháttar. Ef hann fær ekki að ganga þessa serstöku námsbraut, ha er líklegt, að hann muni aldrei fá notið hæfileika sinna, eða hæfileikar hans fengið að njóta sín. Þetta verður afleiðing þess, ef hann fær ekki að njóta sama styrks áfram og hann hefir nú haft á annað ár. Hann hefir mjög lofsamleg ummæli kennara sinna, og telja þeir hann efni í afbragðsmann, ef hann fær tækifæri til að njóta sín.
Þriðji styrkurinn, er ég geri till. um, er til tannlæknisnáms. Ég verð að játa, að þar er nokkuð öðru máli að gegna, vegna þess að nokkuð margir ungir tannlæknar eru til. En það er vafasamt, að hann fái lokið námi vegna fátæktar, ef hann fær ekki þennan styrk. Hér hafa og útlendingar haft atvinnu við tannlækningar, af því ekki hafa verið til nógu margir innlendir menn með því námi til að fullnægja eftirspurninni. Er því æskilegt, að ástæðurnar verði hér sem fyrst þær, að eingöngu íslenzkir tannlæknar verði hér starfandi.
Þá hefi ég á sama lið gert till. um að styrkurinn til kvennaskólans í Rvík verði latinn halda sér. Er ekki mikið um það að segja, meðan ekki hafa heyrzt ástæður fyrir því, að þessi styrkur er lækkaður. Líklega er þó ástæðan almennur samdráttur á útgjöldum. En þessi skóli hefir farið sívaxandi og er því að sama skapi í sívaxandi þörf. Í raun og veru er það því samdráttur á útgjöldum það eitt, að láta styrkinn halda sér óbreyttan.
Kem ég þá að XI. brtt. á sama þskj. En þar hefir mér orðið sama á og karlinum, sem sagði „fokka“, þegar hann ætlaði að segja „klýfir“. Ég hefi þar farið fram á styrk til útgáfu orðabókar, en ætlaði að segja kennslubókar. Þetta getur nú varla verið prentvilla, þar sem orðin eru svo ólík. Eina skýringin á þessu er því það, að ég hafi skrifað þetta skakkt, þó mér sé það í raun og veru líka óskiljanlegt, þar sem fyrir mér vakti kennslubók í ítölsku, en hreint ekki orðabók. Ég vil nú spyrja hæstv. forseta hvort hann treysti sér ekki til að bera þessa till. upp með þessari breyt., að hér sé um kennslubók að ræða og láta síðan lagfæra það í prentun. Þetta er bara lapsus og ég vil leyfa mér að mæla með brtt. á þeim grundvelli, að hér sé um kennslubók að ræða. — Þeim manni, sem hér um ræðir, hafa áður verið veittar 1500 kr. til að gefa út kennslubók í spönsku. Var mikil þörf á kennslubók í því máli, vegna þeirra miklu viðskipta, er við höfðum við Spánverja. Hinsvegar hefir það reynzt svo, að eftirspurnin eftir slíkri bók er ekki svo mikil, að útgáfan borgi sig styrklaust. M. a. hygg ég, að útgefandinn muni tapa á útgáfunni, þrátt fyrir þennan styrk. Sú kennslubók, sem í ráði er að gefa út á ítölsku, verður líka nokkru stærri, því það hefir komið í ljós, að hin var helzt til lítil. það segir sig sjálft, að þegar 1500 kr. hafa ekki nægt til þeirrar útgáfu, þá muni sama upphæð því síður standa undir útgáfu stærri bókar. Að vísu má segja, að hækka mætti verðið, en það þýðir þá bara minni sölu og verður það því lítill ávinningur. Höf. hefir ekki hugsað sér neinn ábata af þessari útgáfu og vill gjarnan afsala sér ólíku til þess, er kann að fast til að kosta útgáfuna. Ég geri því ráð fyrir, að ef þingið fellir þennan styrk, geti það fengið handritið að gjöf, ef það vill kosta útgáfuna. Hann mun frekar kjósa það heldur en að bera áhættu af útgáfu bókarinnar. En ég vil ekki taka ábyrgð á, að það kosti þingið ekki meira.
Þá er XV. brtt., styrkur til Elliheimilisins Grundar í Rvík. En þótt ég hafi borið hana fram, þá hygg ég þó, að ég muni taka þann kost að taka hana aftur til 3. umr., vegna þeirra ummæla hv. frsm. fjvn., að hann teldi rétt, að þetta Elliheimili fengi styrk, ef hin héldu sínum styrk áfram. En nú ber hv. fjvn. fram till. um það að fella niður styrk til hinna gamalmennahælanna, og verður úr skorið, hvort svo skuli gert með atkvgr. við þessa umr. En nú kemur mín brtt. á undan brtt. n. þykir mér því rétt að taka brtt. aftur til 3. umr. og sjá hvað setur um hinar. Þó ég geri þetta, þá tel ég það enganveginn rétt, að eitt gangi yfir öll hælin.
Hér stendur allt öðruvísi á en á Seyðisfirði og Ísafirði. Þar munu þessi hæli vera eingöngu fyrir viðkomandi kaupstaði og máske nærliggjandi sveitir. En heita má, að Elliheimilið hér sé notað af mönnum úr öllum landsfjórðungum. Það er því miklu frekar stofnun fyrir allt landið en hin, og ætti því enn frekar að njóta styrks af sameiginlegum sjóði landsmanna. Eftir forminu er það svona. Þetta er rekið hér af félagi, sem ekki skoðar rétta sem gróðafélag, heldur líknarstofnun, enda er fjárhagur þess erfiður. Er eigi annað sýnilegt en að félagið verði að gefast upp og mundi þá verða á því opinber rekstur á einhvern hátt. Er svo um mælt í stofnskrá félagsins, að ef félagið hættir að starfrækja Elliheimilið einhverra hluta vegna, þá skuli það afhendast bæjarfél. eða ríkinu. Verður það og varla látið standa autt til lengdar, svo vel sem það er úr garði gert fyrir þessa starfsemi.
Ég tek till. aftur til 3. umræðu af framangreindum ástæðum, en ber hana þá líka upp aftur undir öllum kringumstæðum, hvernig sem fer um tillögu nefndarinnar.