31.03.1932
Efri deild: 39. fundur, 45. löggjafarþing.
Sjá dálk 1485 í B-deild Alþingistíðinda. (1350)
130. mál, raforkuver
Frsm. (Jón Þorláksson):
Fjhn. hefir orðið sammála um að mæla með þessu frv., með þeirri einu breyt., sem greind er í nál. á þskj. 254, að n. sú, sem frv. gerir ráð fyrir, að skipuð verði til þess að undirbúa till. um þessi mál, verði ekki lögákveðin, heldur sé stj. heimilt að skipa hana. Það hefir sem sagt orðið að samkomulagi að mæla með frv. með þessari breyt., og vona ég, að jafngott samkomulag fáist um það í d., svo að ég þurfi ekki að flytja frekari framsöguræðu af hálfu n. frv. til meðmæla, frá mínu sjónarmiði segi ég það, að ég tel það ekki bót á frv. að leggja það á vald stj., hvort n. sé skipuð eða ekki. En ég fulltreysti því, að hvaða stj. sem er muni nota sér það að ná þannig samvinnu við alla flokka þingsins um þessi mál, jafnskjótt og nokkrar þær skýrslur liggja fyrir frá vegamálastjóra, sem gefa tilefni til þess, að stj. taki til yfirvegunar, hvort rétt sé að undirbúa till. til þál. eða frv. til laga út af þessu máli. Þetta segi ég fyrir mína hönd sérstaklega, til að gera grein fyrir því, að ég hefi þó getað orðið meðnm. mínum samferða í því að flytja þessa breytingu.