05.05.1932
Efri deild: 68. fundur, 45. löggjafarþing.
Sjá dálk 489 í B-deild Alþingistíðinda. (137)
1. mál, fjárlög 1933
Fjmrh. (Ásgeir Ásgeirsson):
Það er ekki ástæða til að segja margt um þær till., sem fram eru komnar. Ég vænti þó að meginhlutinn af hækkunartill. verði ekki samþ. Hinsvegar sezt það á mörgum þeim till., sem eru bornar fram til niðurfellingar á liðum. Að það er skorið nálægt kvikunni. Þar er sumt smátt að vöxtum og á takmörkum þess, sem frambærilegt verður að teljast. Ég vil geta þess, að mér þykir það leitt, ef allir sjúkrastyrkir 17. gr. verða niður skornir. Ég hafði látið þá standa í fjárlfrv., en lækkað þá nokkuð. Þar sem ríkið annars gerir svo lítið til styrktar sjúkrasamlögum og vænta má, að engin breyt. verði á því um sinn, þá er ekki allskostar viðfeldið að fella niður þessar smáfjárveitingar. Sama er að segja um rithöf. Halldór Kiljan Laxness og Þorberg Þórðarson. Þessir liðir höfðu verið lækkaðir um 20% sem aðrir líkir liðir. Ég álít, að þeir eigi ekki neins að gjalda frekar en aðrir lausamenn fjárl. Þeir hafa nú staðið þar alllengi, og hefir hvor þeirra nokkuð til síns ágætis. Er og réttara að halda styrkveitingum til þeirra afram, því telja má víst, þó þeir verði teknir út nú, að þeir myndu koma inn aftur síðar. Er illt, ef slíkir styrkir eru veittir með kippum, en fá ekki að vera stöðugir. — Um Laxness er það að segja, að þó ég vilji ekki forsvara allt, sem hann hefir ritað, þá er hann þó þeirra mestur og efnilegastur, sem nú rita skáldsögur á íslenzku. Er það bæði þegar tekið er tillit til kosta og líka máske galla. Er ekki rétt að svipta öllum styrk svo afkastamikinn rithöf. sem H. K. L. er.
Þá er till. um að fella risnu forsrh. úr 6 þús. kr. niður í 4 þús. kr. Ég hefði lagt til, að þessi liður væri lækkaður úr 8 þús. kr. niður í 6 þús. kr. Ég nefni þetta vegna þess, að skyldur þær, sem þvíla á ríkisstj., sérstaklega forsrh., eru svo miklar og margvíslegar, að enginn ráðh. getur til fulls lifað á sínum ráðherralaunum. Þetta þekkja allir Rvíkingar. Hinsvegar verður það að teljast rétt á slíkum tímum að lækka þennan lið um 2000 kr. Forsrh. er þó vissulega ekki ofhaldinn af því, þó að slíkt sé þráfaldlega talið eftir í stjórnmálaumr.
Ég hygg, að í till. n. sé nokkuð langt gengið um niðurfærslu. Það er vafasamt, þó nú sé hart í ári, að útgjöld samkv. jarðræktarlögunum lækki svo stórkostlega sem n. gerir ráð fyrir. Á þessu ári verða þau miðuð við ræktun síðasta árs, um 630 þús. kr. 30 þús. kr. til tilbúins áburðar hafði Nd. fellt, vegna þess að styrkur til flutninga var þar talinn aðeins hafa verið byrjunarstyrkur, sem veita skyldi meðan notkun áburðarins væri að ryðja sér til rúms, og væri æskilegt, að hann héldist ekki allt of lengi. Að öðru leyti skal ég ekki veitast að einstökum till. Ég þykist sjá, að þó þær hafi ýmsar nokkuð til síns máls, þá muni þær ekki allar ná fram að ganga. — Ég vildi þó mæla með till. hv. þm. A.-Húnv. um styrk til fiskiræktarfél. Blöndu, sem ég feldi niður, en skal játa, að hafi verið af misskilningi. Ég bið hv. d., að láta ekki félagið gjalda þessa misskilnings.
Það er ekki glæsilegur greiðslujöfnuður á frv., eins og það er nú, en þó er sú huggun, að tekjuáætlanir eru varlegar, og sparnaðarfrv. á góðri leið í þinginu. Er það aðalatriðið um sæmilega afgreiðslu fjárlagafrv. á þessu þingi, að afgreiða sparnaðarfrv. og tekjuaukafrv., sem flest bíða hér í Ed. Fjárl. hafa nú verið skorin niður svo sem unnt er, eins og till., sem nú koma fram sýna, og sæmilegt samstarf þingflokkanna a. m. k. aðalflokkanna, er um þennan niðurskurð. En eftir er að vinna saman um sparnaðar- og tekjuaukafrv., og veldur það úrslitunum um það, hvort talið verður, að þetta þing hafi gengið forsvaranlega frá fjármálum ríkisins.