20.04.1932
Neðri deild: 56. fundur, 45. löggjafarþing.
Sjá dálk 1490 í B-deild Alþingistíðinda. (1375)
137. mál, póstlög
Frsm. (Sveinbjörn Högnason):
Frv. þetta er komið frá Ed. og var afgr. þaðan með shlj. atkv. Það fer fram á nokkrar breyt. á núgildandi póstlögum. Sumar þeirra eru jafnvel þegar komnar á og hafa verið í framkvæmd um nokkurt skeið samkv. reglugerð.
Helzta breytingin er sú, að koma hámarksþyngd bréfa í samræmi við það, sem annarsstaðar gildir, og er það fullkomlega réttmætt að færa það hamark allverulega upp, þegar svo hefir batnað um flutninga á pósti sem öðru. Önnur aðalbreytingin er sú, að staðartaxti megi gilda nokkuð frekar en áður. Þetta kemur einkum til greina milli Hafnarfjarðar og Reykjavíkur. Það er eðlilegt, að staðartaxti gildi milli staða, sem hafa jafnmikil skipti saman og samgöngur og þessir tveir kaupstaðir. Þegar taxinn er þar, þá er vitanlega mikið af bréfum sent sem prívatbréf með bilstjórum, og getur það valdið margvíslegum truflunum á viðskiptum, og póstsjóður missir tekna.
Samgmn. hefir óskað að gera nokkra breyt á 2. gr. Í 2. gr. er svo ákveðið, að staðartaxti megi gilda allt að 7 km. út frá pósthúsi. N. þykir rétt að láta staðartaxta gilda jafnan innan sveitar, þótt lengra sé frá pósthúsi en 7 km. Því getur að vísu verið erfitt að koma við þar, sem hreppar eru stórir og beinar póstgöngur eru ekki innanhrepps, heldur ganga yfir aðra hreppa. En þar, sem hreppar eru stórir og samgöngur verri, er ekki ástæða til að láta greiða hárri burðargjöld innansveitar en annarsstaðar og rétt að láta hið sama gilda um þá og aðrar sveitir. Það virðist tæpast rétt að láta slíkar sveitir gjalda með póstflutninga sína þeirra erfiðu samgangna, sem þær eiga við að búa, enda þótt það kosti nokkru meira að flytja hann en annarsstaðar, sem staðartaxti gildir.
Aðra verulega breyt. hefir n. ekki gert við frv. En við 6. gr. hefir n. gert orðabreytingu; það er ekki efnisbreyt. Í frv. gr. er talað um „óstimpluð“ frímerki; n. leit svo á, að það gæti misskilizt og menn gætu skilið það svo, að átt væri við áður notuð frímerki. Til að fyrirbyggja þann misskilning hefir n. tekið upp orðið „áprentuð“ frímerki.
Í þessari brtt. er prentvilla á þskj. 421. Þar stendur „frímerkjavéla“, en á að vera: frímerkingavéla.
Annað held ég, að sé ekki ástæða til að taka fram um þetta mál.