09.03.1932
Efri deild: 24. fundur, 45. löggjafarþing.
Sjá dálk 1500 í B-deild Alþingistíðinda. (1418)
45. mál, tannlækningar
Frsm. (Jón Jónsson):
Ég þarf ekki langa framsögu fyrir þessu máli. Eins og skýrt er frá í nál., hefir allshn. orðið sammála um að leggja til, að frv. verði samþ. óbreytt, enda hefir landlæknir í viðtali við n. ljóst sig samþykkan frv. -f hinum ýmsu héruðum landsins er fólki allt of erfitt að ná til lærðra tannlækna, og má reyndar segja, að ekki sé um tannIækna að ræða nema hér í Rvík og á Akureyri. Verður það því allkostnaðarsamt fyrir fólk að fá sér gervitennur, og enda illkleift. Þó að tannlæknarnir hinsvegar kunni að ferðast eitthvað um landið árlega, sem þeir þó lítið gera að, nægir það alls ekki til að bæta úr þeirri þörf sem fólki er á tannlækningum, svo að neinu verulegu nemi. Þeir munu oftast vera á ferðinni á annatíma, þegar fólk getur ekki snúizt við því að fá sér tennur.
Ég hefi að vísu orðið þess var, að sumir tannlæknar hér í bænum muni vera frv. andstæðir, en það er ekki nema skiljanlegt, þó að tannlæknar sem aðrir vilji reyna að halda utan um sína sérhagsmuni, en þó munu tannlæknar hér ekki allir andvígir frv., eftir því sem landlæknir tjáði n., enda á það að vera sæmilega tryggt eftir frv., að þessar undanþágur, sem samkv. því má gera frá tannlækningal., verði ekki misnotaðar.