09.04.1932
Efri deild: 47. fundur, 45. löggjafarþing.
Sjá dálk 1518 í B-deild Alþingistíðinda. (1476)

210. mál, hafnarlög fyrir Vestmannaeyjar

Jón Baldvinsson:

Þótt frv. þetta sé ekki langt, þá er það þó næsta innihaldsríkt og getur haft slæmar afleiðingar, ef það verður samþ. Frv. fer fram á það, að festa-, lesta- og uppsátursgjöld af vélbátum og öðrum skipum gangi í tvö ár eftir gjalddaga fyrir öllum veðkröfum í skipum og bátum, samhliða vita- og lestagjaldi til ríkissjóðs. Þetta er að rýra að mun rétt verkafólks, sem verður að fá kaup sitt goldið eftir sjóveði. Í öðru lagi hefir þetta þau áhrif, að hættulegra verður fyrir lánsstofnanir að lána fé til báta og útgerðar þarna. Og í þriðja lagi getur þetta ýtt undir hafnarnefnd Vestmannaeyja að trassa innheimtu hafnargjalda.

Ef frv. þetta verður afgr. til sjútvn. hér, þá vona ég, að hún athugi vel, hvort rétt sé að samþ. frv. Ef þetta verður samþ. fyrir Vestmannaeyjar, þá má gera ráð fyrir, að fleiri kauptún og kaupstaðir komi og heimti sömu lög sér til handa. þetta mun veikja lánstraust bátaeigenda og fyrir verkafólkið er það mjög varhugavert.

Ég mun ekki geta greitt þessu frv. atkv. til 2. umr., þó segja megi, að meinlaust væri, að það gangi til n., ef það verður látið lög nást þar út af.