29.03.1932
Neðri deild: 37. fundur, 45. löggjafarþing.
Sjá dálk 1528 í B-deild Alþingistíðinda. (1493)

218. mál, varðskip landsins

Haraldur Guðmundsson:

Ég vil taka undir það með hv. þm. Vestm., að n. fái frv. aftur til athugunar. Ég flyt annað frv. um breyt. á varðskipalögunum, sem ég vona, að n. athugi þá um leið nánar. Hv. þm. tók það réttilega fram, að þegar lögin 1928 voru samþ., héldum við Alþýðuflokksmenn því fram, að yfirleitt ættu um kjör skipverja að gilda hinar almennu reglur sjómannalaganna, og út á það gengur nú frv. mitt.

Í sambandi við þetta frv., sem hér liggur fyrir, er það nýmæli í 4. gr., að setja reglur um skiptingu björgunarlauna. Það er tæplega réttmætt að hafa skiptingu á björgunarlaunum þá sömu, hvort sem skipið er búið fullkomnum björgunartækjum eða ekki. Ég held, að réttmætt sé að ákveða þann hluta, sem skipið fengi, með tilliti til þess, hve fullkomin björgunartækin eru. Auk þess finnst mér það alveg fráleitt að miða skiptinguna eingöngu við kaup skipverja. Sumir leggja sig í mikla hættu við björgun, en aðrir litla eða enga. Ég held því, að ef um þetta ætti að setja ákveðnar reglur, þá ætti að taka einhvern hluta af þeim hluta björgunarlaunanna, sem fellur til skipshafnarinnar, sérstaklega frá handa þeim, sem leggja sig í hættu við björgunina, en hinn hlutann handa skipverjum almennt, hvort sem honum svo er skipt í hlutfalli við kaup þeirra eða eftir öðrum reglum. Ég vil biðja sjútvn. að athuga þetta, því ég vona, að hún taki bæði frv. til athugunar. Loks vil ég benda á það, sem máli skiptir og ólíkt er í mínu frv. og í frv. n., að í mínu frv. er lagt til, að 5. og 6. gr. 1. falli niður. Með leyfi hæstv. forseta vil ég lesa 5. gr. upp: „Skipstjóri getur vikið þeim skipverjum, sem um ræðir í 4. gr., fyrirvaralaust frá starfi, ef honum þykir ástaeða til“. Ég þóttist heyra það á ræðu hv. þm. Vestm., að til þess hafi oft verið gripið að ófyrirsynju, og synir það, hvað fráleitt það er, að þessi gr. standi í lögunum. — 6. gr. hljóðar svo: „Dómsmálaráðuneytið semur reglugerð um skyldur og störf skipverja á varðskipunum. Þátttaka í verkfalli varðar skipverja ábyrgð eftir lögum nr. 33 1915. Það er í mínum augum alveg fráleitt að láta þessi lög frá 1915, sem eru bæði ranglát og heimskuleg að mínum dómi, ná til skipverja á varðskipum. Með því eru þeir settir skör lægra en allir aðrir sjómenn. Í frv. mínu er gert ráð fyrir, að þessar tvær gr. falli niður og almennar reglur sjómannalaganna gildi um kjör og ráðningu skipverja á varðskipum.