20.04.1932
Neðri deild: 56. fundur, 45. löggjafarþing.
Sjá dálk 1533 í B-deild Alþingistíðinda. (1498)

218. mál, varðskip landsins

Haraldur Guðmundsson:

Ég drap á það við l. umr. þessa máls og bað hv. sjútvn. að taka til athugunar frv., sem ég hefi flutt á þessu þingi um sama efni. Ennfremur drap ég þá á ákvæði 4. gr. um skiptingu björgunarlaunanna og beindi til n., hvort ekki mundi rétt að taka upp aðra aðferð um skiptingu björgunarlauna en þar er gert ráð fyrir. Mér skildist þá, að hv. sjútvn. ætlaði að taka þetta atriði og fleira í varðskipalögunum til nánari athugunar ásamt frv. mínu. Þess vegna vildi ég nú leita upplýsinga hjá hv. n., hvort hún hefir gert þetta, og þá á hvern hátt.