05.05.1932
Efri deild: 68. fundur, 45. löggjafarþing.
Sjá dálk 509 í B-deild Alþingistíðinda. (150)

1. mál, fjárlög 1933

Bjarni Snæbjörnsson [óyfirl]:

Það eru aðeins örfá orð. Ekki þó beinlínis út af brtt. mínum, því mér hefir heyrzt á hv. frsm., að fjvn. ætlaði að vera svo væn að samþ. þær. — En það, sem ég vildi segja, var út af því, sem hv. 2. þm. N.-M. vek að persónustyrkjum frá sjónarmiði sínu, þar sem hann talaði um till. sína um að fella niður styrk til Jóns Leifs . Það getur nú máske verið, að hjá mér kenni sama misskilnings og komið hefir fram hér í hv. d. í öðrum atriðum. En ég skildi ekki, hvert hv. þm. stefndi, hvort heldur að hann vildi fella niður styrk til þessa manns, eða ha að veita honum öruggari styrk t. d. í 18. gr., þannig að vissu megi telja, að styrkurinn verði stöðugur. Ef maðurinn, sem styrkinn fær, uppfyllir þau skilyrði, sem réttlætir styrkinn, og búast má við, að þau skilyrði haldi áfram, þá er eðlilegt, að styrkurinn sé veittur á þeim stað í f jarl., sem öruggan má telja frá ári til ars. En þá mega menn ekki heldur sofna í starfi sínu eins og stundum mun þó hafa átt sér stað. Sem fjvn.maður get ég sagt það, að sumir standa ár frá ari með styrkveitingu, an þess að vinna positivt fyrir þessum styrk.

Þá er það annað, þegar ungir og máske efnilegir menn sækja um námsstyrk, þá er varhugavert að veita hann, nema með þeirri ákveðnu hugsun, að þeir njóti áfram styrks, þar til þeir hafa lokið námi. heim er lítill og vafasamur greiði gerður með því að veita heim styrk til eins árs eða tveggja, narra þá til að byrja á nami, sem heim er um megn að ljúka við án styrks, en taka svo af þeim styrkinn, þegar þeir eru varla hálfnaðir við nám sitt. Ég fyrir mitt leyti teldi bezt að þessum námsstyrkjum væri svo fyrir komið, að ríflegri styrkur væri fenginn menntamálaráðinu til úthlutunar, og svo kæmu slíkir styrkir ekki til þingsins kasta, og þau leiðindi öll, er heim styrkjum og „agitationum“ fyrir þeim fylgja. Menntamálaráðið mundi þá fylgjast með, hvernig styrkurinn væri notaður og veita heim námsmönnum, er sýndu sig þess verðuga, styrk til að ljúka námi.

Ég vil víkja að þeim manni, sem hv. 2. þm. N.-M. vill fella niður styrk til. Hann hefir reynst þjóðinni til hins mesta sóma út á við.

Það hefir verið nokkuð deilt um till. fjvn. um að fella niður styrk til tveggja manna. En þar sem þær till. eru nú teknar aftur, þarf ekki meira um ráð að tala. En í sambandi við þær till. vil ég þó segja það, að ég fyrir mitt leyti er því mótfallinn, að ungum skáldum sé veittur Slíkur styrkur. Það er öllum betra, að þeim sé komið svo fyrir, að þeir fái starf að vinna, sem er þó eigi meira en það, að skáldgáfa þeirra geti notið sín. Ég tel það heppilega leið, sem þingið for, er það setti upp lesstofur á Akureyri og Ísafirði og gerði þar ung skáld að bókavörðum. Er það í öllu betra og heppilegra fyrir þessa ungu menn heldur en að þeir hefðu fengið persónustyrk. Ég skal ekki blandet mér inn í deilur um það, hversu góðir þeir rithöf. eru, sem hér er um deilt. — Hæstv. ráðh. talaði með Halldóri Kiljan Laxess, að því er mér skildist. Hann sagði að vísu, að hann hefði galla, en líka góð tilþrif. En þá er það mest undir því komið, hvort meira ber á kostunum eða göllunum. En sennilegast er að þeir upphefji há hvorir aðra.

Vegna þess hvernig mennt Jóns Leifs er varið, eru lítil skilyrði fyrir því að þroska hana hér á landi. Í útlöndum er betri aðstaða til að þroska þessa list, enda eigum við ekkert tónskáld annað á þessu sviði. — Það hefir sýnt sig, að hann hefir orðið landinu til sóma, og þó aldrei notið styrks frá ríkinu, enda þótt hann væri þess miklu maklegri en margir þeir, sem í fjárl. hafa komizt og staðið þar árum saman, án þess að nokkuð verðmæti hafi frá þeim komið.