05.05.1932
Efri deild: 68. fundur, 45. löggjafarþing.
Sjá dálk 511 í B-deild Alþingistíðinda. (151)
1. mál, fjárlög 1933
Páll Hermannsson:
Ég hefi hingað til staðið í þeirri meiningu, að það gæti flýtt fyrir umr., að taka brtt. aftur. En nú um hríð hefir mestur tíminn gengið í það að ræða till., sem svo er ástatt um. En við þær umr. skal ég ekki bæta.
Hv. þm. Hafnf. taldi sig ekki hafa skilið, við hvað ég ætti, með því að gera brtt. um að taka styrk til Jóns Leifs út úr fjárl. — Ég átti nú vitanlega við það, að þessi styrkur felli niður og ekkert annað. Og fyrir þessari till. hafði ég þrjár ástæður. Í fyrsta lagi þá, að þessi styrkveiting er allt annað en Jón Leifs bað um. Hann óskaði eftir því, að sér væru veitt starfslaun. En í stað þess er honum veittur lítilfjörlegur styrkur, sem ég veit ekki, hver þægð honum er í að fá. — Í öðru lagi hefir liður þessi að lítt athuguðu máli slampazt inn í Nd. með örlitlum meiri hl. Og í þriðja lagi er ég samdóma hv. þm. Hafnf. um það, að persónustyrkjum Sé betur fyrirkomið á annan hátt en hann, að þingið fjalli um og ákveði þá. Ég er samþ. því, að ef Alþ. ætlar að úthluta meira fé í persónustyrki en menntamálaráðinu er fengið til umráða, þá sé betra að hækka tillag til þess, ef það yrði ti1 þess, og trygging væri fyrir því, að þingið losnaði þá við allt þref um persónustyrki. — Hv. þm. sagði, að Jón Leifs hefði orðið okkur til sóma með starfi sínu erlendis. Ég skal taka hann trúanlegan um það. En það hafa margir fleiri landar okkar gert og hafa þó eigi leitað styrks eða neinum hér dottið í hug að veita þeim hann. Ég efa t. d., að nokkur Íslendingur hafi orðið okkur meira til sæmdar en skáldið Stephan G. Stephansson, og hlaut hann þó aldrei styrk frá Alþ., enda ætlaðist ekki til þess.
Ég er sammála um, að það er betri leið, sem farin hefir verið á Akureyri og Ísafirði, að veita bókasöfnunum á þeim stöðum ríflegan styrk, sem svo hefir orðið til stuðnings fyrir ung skáld, sem hafa fengið þar heppilegri lífsskilyrði en annars. Ég gæti vel unnt Hafnfirðingum hins sama, ef þeir þá vildu taka hið efnilega, unga skáld, Halldór Kiljan Laxness, að sér og tryggja framtíð hans.