11.04.1932
Efri deild: 48. fundur, 45. löggjafarþing.
Sjá dálk 1541 í B-deild Alþingistíðinda. (1520)
351. mál, ríkisborgararéttur
Frsm. (Einar Árnason):
Ég hefi ekki margt um þetta mál að segja. Allshn. hefir orðið ásatt um það að leggja til við hv. d., að 2 mönnum verði veittur íslenzkur ríkisborgararéttur: Hefir n. fengið ýms skjöl viðvíkjandi þessum mönnum, sem upplýsa það, að þeir uppfylla þær kröfur, sem gerðar eru til þess, að íslenzkur ríkisborgararéttur verði veittur. Þar sem n. flytur þetta mál einhuga, geri ég ekki ráð fyrir því, að andmælum verði hreyft gegn því hér í d.