09.05.1932
Efri deild: 70. fundur, 45. löggjafarþing.
Sjá dálk 1551 í B-deild Alþingistíðinda. (1560)

265. mál, sala á Reykjatanga

Frsm. (Jón Jónsson):

Allshn. hefir orðið ásatt um að mæla með því, að þetta frv. verði samþ., enda er það sjálfsagt. hér er aðeins um litla landspildu að ræða, sem var undanskilin sölu, þegar jörðin Reykir í Staðarhreppi var seld. Reykjatanga fylgja þeir kostir, að þar eru hverir og allmikið af heitu vatni. Þar hefir verið reistur héraðsskóli, sem hefir afnot af þessu heita vatni, og virðist því, að ekki sé annað eðlilegra en að skólinn fái þessa landspildu til eignar og umraða, eftir þeim reglum, sem gilda um þjóðjarðasölu, um mat á landinu, afborgunarkjör o. fl. Allshn. mælir því eindregið með því, að þetta frv. nái fram að ganga.