25.04.1932
Efri deild: 59. fundur, 45. löggjafarþing.
Sjá dálk 1553 í B-deild Alþingistíðinda. (1568)

490. mál, Jöfnunarsjóður

Frsm. (Jón Þorláksson):

Út af ræðu hv. 2. landsk. þykir mér rétt að taka það fram, að þetta er allt annað frv. en það, sem Alþýðuflokkurinn flutti á síðasta þingi og nú á þessu þingi. En fjhn. þótti réttara að koma fram með þetta frv. sem sjálfstætt mál heldur en að hafa þá aðferð, sem höfð var í hv. Nd. í fyrra, að breyta sérhverri grein frv. og fyrirsögninni líka. Ég skal ekki neitt fara að ræða það frv., sem hann flutti hér; það liggur ekki fyrir, og ég get því látið mér nægja það, sem ég sagði um það hér í hv. d. á síðasta þingi.

Með þessu frv. er ákveðið að ráðstafa tekjuafgangi ríkissjóðs, þegar til kemur, til 3 verkefna, sem sjálfsögð virðast. Fyrst er það, að greiða með honum tekjuhalla frá fyrra ári, þegar hann hefir verið meiri en svo, að hægt sé að greiða hann úr sjóði frá fyrra ári. Í öðru lagi á að verja honum til að halda uppi ólögbundnum framkvæmdum í erfiðum árum, þannig, að þær svari alltaf til meðaltals 5 síðustu ára. Og þriðja verkefnið er að inna af hendi aukaafborganir af skuldum ríkissjóðs.

Þessi 3 verkefni, sem sjóðnum eru ætluð, hygg ég, að ekki þurfi frekar að tala um. Ég vona, að hv. d. fallist á, að það sé sjálfsagt að inna þau af hendi, og að það sé skikkanleg meðferð á þeim tekjuafgangi, sem ríkissjóði kann að safnast í sjóðinn í óvæntu góðæri.