14.04.1932
Efri deild: 51. fundur, 45. löggjafarþing.
Sjá dálk 1584 í B-deild Alþingistíðinda. (1626)

156. mál, barnavernd

Einar Árnason:

Ég hefi leyft mér að flytja nokkrar brtt. við þetta frv. Ég gat þess við 2. umr., að ég hefði heldur kosið, að frv. þetta væri að nokkru leyti samþ. sem heimildarlög. Þær brtt., sem ég flyt, ganga í þá átt, en efni frv. breyta þær ekki í verulegum atriðum. Í fyrstu brtt., sem er önnur orðun á 1. gr., er svo fyrir mælt, að barnaverndarnefnd skuli vera í Reykjavík og eins fyrir komið og frv. gerir ráð fyrir.

Í 2. brtt. er svo fyrir mælt, að í kaupstöðum og kauptúnum utan Reykjavíkur, sem hafa 300 íbúa eða fleiri, skuli bæjarstjórnunum eða hreppsnefndunum heimilt að skipa slíkar barnaverndarnefndir, og er gengið frá því líkt og í frv. — í 7. brtt. er einnig heimild fyrir kennslumálaráðh. að skipa barnaverndarráð. Hinar brtt. eru svo afleiðing þessara aðalbreytinga.

Ef svo fer, að 2. brtt. nær samþykki, þá leiðir af því, að rétt er, að úr frv. falli nokkur atriði, sem þá eiga ekki við, eða eru óþörf, og lúta sumar brtt. að því, þá er og gert ráð fyrir því, að 18. gr. falli niður. Það ákvæði getur ekki átt við, ef brtt. verður samþ. og ekki er skipuð barnaverndarn. nema í Reykjavík. En þótt fleiri slíkar n. verði skipaðar, þá mun þess ekki þurfa við að lög ákveða þá samvinnu þeirra í milli, sem 18. gr. ákveður. Ég lít svo á, að það verði áhugamál þeirra sjálfra að hafa slíka samvinnu, svo ekki þurfi að lög festa það.

Þá er lagt til, að 21. gr. falli niður, en ákvæði hennar hefi ég tekið upp í 7. brtt., sem verður 20. gr., ef hún nær samþykki.

Þá hefi ég loks lagt það til, að 24. gr. frv. falli niður. Hún ákveður, að barnahæli geti því aðeins notið styrks af ríkisfé, að þau fái meðmæli barnaverndarráðs. En ef slíkt ráð verður ekki skipað, þá finnst mér ekki rétt að binda styrkveitingu til barnahæla við það.

Ég geri ráð fyrir því, að hv. dm. sé ljóst, að hverju brtt. mínar stefna; þær eru svo einfaldar, að ekki þarf langan tíma til að átta sig á þeim. Ég hefði þó gjarnan kosið, að þær hefðu komið fram fyrr, en málið hefir gengið svo hratt hér í gegnum d., að mér vannst ekki tími til að hafa þær fyrr tilbúnar en þetta.