16.04.1932
Efri deild: 53. fundur, 45. löggjafarþing.
Sjá dálk 1589 í B-deild Alþingistíðinda. (1633)
156. mál, barnavernd
Einar Árnason:
Hv. 3. landsk. og líka hv. 6. landsk. létu í ljós undrun sína yfir því, að ég skyldi flytja brtt. við þetta frv. Ég vil nú út af þessu segja, að mín undrun er ekki minni yfir því, að þeim skuli finnast þetta nokkuð undarlegt, bæði af því, að það er meira og minna algengt að flytja brtt. við frv., og þó sérstaklega af því, að við 2. umr. málsins gat ég þess, að ég hefði nokkrar aths. við frv. að gera, og lýsti þeim þá að nokkru leyti. Ég lét í ljós þá skoðun mína, að frv. ætti að mestu eða öllu leyti að vera heimildarlög. Og ég gerði ráð fyrir, að flm. hefðu heyrt það, sem ég sagði, því ég vissi ekki annað en að þeir hefðu verið staddir í d. En af ummælum þeirra er ekki hægt að skilja, að svo hafi verið.
Hv. 3. landsk. sagði, að það stafaði ekki háski af frv. Ég verð mi að segja, að það er ekki að gera háar kröfur til frv., ef ekki er farið fram á annað en að af því stafi enginn háski. Ég hélt þó, að það mætti gera þær kröfur, að það gæti gert eitthvert gagn. Mér hefir ekki dottið í hug að segja, að það stafaði háski af þessu frv. Brtt. mínar miða heldur ekki í þá att, heldur aðeins í þá átt að gera frv., og þá lögin, ef það verður samþ., nokkru frjálslegri. Samkv. brtt. vil ég leggja það á vald sveitar- og bæjarstjórna, hvort þær telja það nauðsynlegt og eru því fylgjandi, að slíkar nefndir séu settar, sem frv. gerir ráð fyrir. Ég hefi þá trú, að þvílíkar ráðstafanir komi að betra liði, ef fólkið sjálft, sem við þær á að búa, finnur hjá sér hvöt til að framkvæma það, sem frv. gerir ráð fyrir. Það er einungis þessi stefna, sem felst í brtt. mínum, að ég vil láta þá, sem hlut eiga að máli, héraðs- og bæjarstjórnir, hafa ákvörðunarrétt um það, hvort nauðsyn sé á að setja þessar n. Hitt er alls ekki mín meining, að sporna við því, að þessar n. séu kosnar, ef hlutaðeigendur telja það til gagns. Þess vegna finnst mér, að brtt. mínar séu ekki fjarstæða, eins og hv. þm. (JónJ og GL) vilja láta í veðri vaka.
Hv. 6. landsk. talaði um þetta mál sem mikið tilfinningamál og sagði hér sögur, sem ég skal ekki bera brigður á, að geti verið réttar, en þær sögur tel ég enga röksemd gegn brtt. mínum. Ég efast ekki um, að það er hægt að segja marga herfilega misþyrmingarsögu úr lífi þessarar þjóðar. En ég held því hiklaust fram, að nú ríki breyttur hugsunarháttur — breyttur til hins betra, og það er viðurkennt, að mannúð í garð smælingjanna sé nú meiri en áður var og að mikil framför hafi orðið í þessa átt. Það er þróun í þessu efni, sem ég vil láta ráða, að svo miklu leyti, sem hægt er.
Hv. 6. landsk. fór allmikið inn á uppeldismálin í þessu sambandi. Það er nú svo, að hver kynslóð mun hafa sínar uppeldis- og menningaraðferðir. Hér áður fyrr var aðaluppeldis- og menningaraðferðin fólgin í tvennu, í fyrsta lagi í því, að hér voru margar kirkjur, og í öðru lagi í því, að það var mikið notaður vöndurinn. Ég þarf ekki að lýsa því frekar; menn þekkja það svo mjög af ýmsum framkvæmdum valdhafanna gegn smælingjunum. Og oftast var það gert í nafni kirkjunnar og réttlætisins. Nú er vöndurinn lagður niður, og kirkjum hefir fækkað. En þrátt fyrir það heldur menningin áleiðis, og samúð með þeim, sem minni máttar eru, er nú meiri en áður var. Ég held líka, þó ég hafi engan hug á að gera lítið úr því, sem þessar n. gætu gert, að þeim yrði vandsiglt gegnum það völundarhús, sem þær þurfa að ganga í gegnum. Ef þessar n. eiga að starfa af áhuga og grípa yfir höfuð inn í heimilislíf almennings, þá verða þær að kynna sér mjög vel alla heimilishagi einstaklinga yfir höfuð, og það verður erfitt fyrir þær að geta fengið þá kynningu af heimilunum, sem þeim er nauðsynleg. Það verður ákaflega vandfarið með slíkt hlutverk. Ég er hræddur við, að annaðhvort muni þessar n. leggja aftur augun og ekki sjá sér fært að gera mikið, eða þá fara hina leiðina, að grennslast um hagi nábúans hjá nábúanum. Af þessum ástæðum finnst mér væri nauðsynlegt, að héruðin og bæirnir hefðu ákvörðunarrétt um það, hvort og hvenær ætti að setja á stofn það fyrirkomulag, sem farið er fram á í frumvarpinu.
Ég hefi svo ekki meira að segja um þetta; ég hefi lýst afstöðu minni til frv. og þykist hafa synt fram á, að brtt. mínar þurfi alls ekki að standa í vegi fyrir framgangi málsins á hann hátt, sem fyrir flm. vakir, aðeins ef vilji hlutaðeigandi fólks til að fara inn á þá braut er fyrir hendi.