13.05.1932
Efri deild: 74. fundur, 45. löggjafarþing.
Sjá dálk 1607 í B-deild Alþingistíðinda. (1647)
156. mál, barnavernd
Frsm. (Guðrún Lárusdóttir):
Það hafa verið gerðar tvær breyt. á frv. í Nd., og má segja um aðra þeirra, að hún sé til bóta, en hina þvert á móti. Það er breytingin við 1. gr. frv., að nú á ekki lengur að kjósa barnaverndarnefndir nema í kaupstöðum landsins, en ekki í smærri kauptúnum, eins og ætlað var, þar sem íbúar væru 300 eða fleiri. Skólanefndunum er ætlað að vinna það starf, sem þetta frv. ætlaði barnaverndarnefndunum. En það er enginn vafi á því, að nauðsynin í sjávarþorpunum er engu minni en í hinum stærri stöðum. Ég get nefnt sem dæmi, að í fleiri en einum af þeim bréfum, sem undirbúningsnefndinni bárust utan af landi sem svar við fyrirspurnum þessu viðvíkjandi, voru lýsingarnar einna lélegastar í sumum þessara sjávarþorpa. Þó skólanefndir hafi átt að hafa afskipti af óskilgetnum börnum, þá er ég hrædd um, að þær hafi ekki alltaf staðið vel í stöðu sinni hvað það snerti. En vonandi er nú samt, að þetta frv. og þessar nefndarkosningar verði til þess að vekja skólanefndirnar og segja þeim þeirra skyldu. Þótt menntmn. hafi þótt þetta spor vera stigið aftur á bak, þá vill hún samt ekki gera ágreining út af því. Fyrir henni vakir, að frv. fái fram að ganga, og vill hún ekki stofna því í tvísýnu með breytingum.
Hin breytingin, sem ég fyrir mitt leyti og öll n. telur til bóta, er við 1. gr. 2. kafla. Þar sem áður var einungis um heimild að ræða, er nú tvímælalaus skylda; í staðinn fyrir, að ráðh. var heimilt að skipa yfirbarnaverndarnefnd, þá skal hann gera það.
Þá eru nokkrar smábreyt., sem einnig eru til bóta, og þegar alls er gætt, leggur menntnm. til, að frv. verði samþ. í þeirri mynd, sem það er nú.