13.05.1932
Efri deild: 74. fundur, 45. löggjafarþing.
Sjá dálk 1608 í B-deild Alþingistíðinda. (1648)

156. mál, barnavernd

Jón Jónsson:

Ég vil bara taka undir þessa áskorun hv. frsm., að d. samþ. frv. Þó er eitt atriði þessu viðvíkjandi, sem ég legg öðruvísi skilning í en hv. frsm. Eins og hann benti á, þá hefir frv. tekið tveimur aðalbreytingum í Nd. Seinni breyt. er að lögbjóða barnaverndarráð og það tel ég til mikilla bóta. Hin breyt. er um það, að utan kaupstaða skuli skólanefndir vinna störf barnaverndarnefnda, en vitanlega er gert ráð fyrir því, að skólanefndir hafi sömu skyldur sem barnaverndarnefndir. Þess vegna er þessum héruðum utan kaupstaðanna ekki stofnað í hættu hvað þetta snertir, heldur er þetta hagkvæmara í fámennum héruðum, því oft er ekki um svo marga áhugamenn að ræða á þessu sviði. Ég ætla, að barnaverndinni sé eins vel borgið, þó þetta starf sé falið skólanefndunum, og legg því til, að frv. verði samþ.