23.04.1932
Neðri deild: 58. fundur, 45. löggjafarþing.
Sjá dálk 1622 í B-deild Alþingistíðinda. (1666)

36. mál, skipun læknishéraða, verksvið landlæknis og störf héraðslækna

Fors.- og atvmrh. (Tryggvi Þórhallsson):

Það er út af tvennu, að ég hefi kvatt mér hljóðs. Við 2. umr. frv. þessa hér í d. var bætt inn í það nýju læknishéraði. Í sambandi við það vil ég minna á, að mér hafa fyrir nokkrum árum borizt óskir úr kjördæmi mínu um að fá nýtt læknishérað þar, setur á Borðeyri, en héraðið nái yfir Hrútafjörð, Miðfjarðardali að nokkru og lítinn hluta Dalasýslu. Að ég þó ekki ber fram brtt. um það að fá þessu nýja læknishéraði bætt inn í frv. nú, er m. a. sökum þess, að þessa 3. umr. bar svo fljótt að, og í öðru lagi af því, að ég hefi líka tækifæri til þess að koma fram með hana í Ed., ef því þá ekki verður frestað í þetta sinn.

Þá vil ég segja nokkur orð út af brtt. hv. 2. þm. Skagf. Það hefir borizt til mín bréf frá nokkrum mönnum í Nauteyrarhreppi, þar sem þeir leggja mjög fast á móti því, að læknissetrið verði ákveðið í Ögri, og skírskota til þess, að þessi hluti héraðsins eigi ákaflega örðuga aðstöðu um að ná lækni frá Ögri og verði því mjög hart úti, ef sú skipun verði gerð, sem lögð er til í frv. Ennfremur benda þeir á það, að fram til þessa hafi læknirinn ekki alltaf setið í Ögri, heldur einnig á Melgraseyri, (JAJ: Hann sat þar aldrei) og þar sat t. d. Sigvaldi Kaldalóns. Þetta vildi ég láta koma fram, og jafnframt vil ég geta þess, að erindi þetta frá Nauteyrarhreppsbúum hefi ég þegar afhent form. n. þeirrar, sem mál þetta hefir haft til meðferðar. Út frá þessu finnst mér b-liðurinn í síðari brtt. háttv. 2. þm. Skagf. á þskj. 501 réttmætur. Þegar svona stendur á, verður það að teljast réttmætt, að málið sé borið undir héraðsbúa og atkvgr. hjá þeim sé látin skera úr, því að ég fyrir mitt leyti fæ ekki annað séð en að fullt tillit beri að taka til óska héraðsbúa í þessum efnum. Þeir eru sá aðili, sem mál þetta varðar mestu, og verða því að teljast dómbærir um það. Hitt er undir einum kringumstæðum rétt, að verði læknissetrið ákveðið í Ögri, þá á þó Nauteyrarhreppur að fá læknisvitjanastyrk.