23.04.1932
Neðri deild: 58. fundur, 45. löggjafarþing.
Sjá dálk 1623 í B-deild Alþingistíðinda. (1667)

36. mál, skipun læknishéraða, verksvið landlæknis og störf héraðslækna

Vilmundur Jónsson:

Hæstv. forsrh. hefir vist ekki tekið eftir því, að atkvgr. á heim grundvelli, sem hann minntist á, hefir þegar farið fram þar vestra um þetta mal. Eins og ég hefi áður tekið fram, liggja hér fyrir Alþingi einróma óskir frá tveimur hreppum, sem í er meiri hluti kjósenda héraðsins, og einnig frá talsverðum fjölda kjósenda úr hinum þriðja hrepp af fjórum alls, um að hafa læknissetrið í Ögri. Mál þetta er þrautrætt vestra, og meiri hluti héraðsbúa hefir sem sagt þegar tekið þá afstöðu til þess, sem ákvæði frv. eru byggð á.

Þá minntist hæstv. ráðh. á, að hann hefði í hyggju að koma fram með brtt. við frv. um stofnun nýs læknishéraðs, vegna þess að bætt hefði verið inn í það hér við 2. umr. nýju héraði. Það er aldrei nema gömul venja hér í þinginu, þegar drepa hefir átt till. eða frv. um stofnun nýs læknishéraðs, að koma þá með uppástungur um fleiri ný héruð. Ég er þess alls ekki fýsandi að stofna mörg ný og smá læknishéruð, hvert á móti. En hvað snertir Ólafsfjarðarlæknishérað, sem hæstv. ráðh. mun hafa átt við, þá stendur nokkuð sérstaklega á um það. Þar hefir að undanförnu verið sérstakur læknir með allmiklum styrk úr ríkissjóði, er slagar hátt upp í laun þau, er hinum nýja héraðslækni mundu verða ákveðin. Íbúatatalan er um 800 manns, og fer alltaf fjölgandi. hér er því ekkert sambærilegt við þá tvo hreppa í Hrútafirði, sem hæstv. ráðh. minntist á, sem munu vera Bæjarhreppur og Staðarhreppur. Þar er íbúatalan í hæsta lagi 500 manns. Þori ég því að fullyrða, að þangað fengist enginn læknir, þó að læknishérað yrði stofnað þar. Vil ég því biðja hæstv. ráðh. að hugsa sig vel um, áður en hann kemur fram með brtt. þessa, því að hún gæti orðið til þess að tefja fyrir málinu í heild, en eins og kunnugt er og viðurkennt orðið, liggur því á afgreiðslu, ekki sízt vegna ákvæðanna um framtíðarskipulag læknamalanna hér í Reykjavík. Einnig þarf það meðal annars vegna gjaldskrarákvæðanna að vera sem mest samferða frv. mínu um lækningaleyfi o. fl., sem nú er komið til Ed. Vænti ég því, að hv. allshn. ýti frv. þessu áfram eins og frekast er kostur.