23.04.1932
Neðri deild: 58. fundur, 45. löggjafarþing.
Sjá dálk 1624 í B-deild Alþingistíðinda. (1668)

36. mál, skipun læknishéraða, verksvið landlæknis og störf héraðslækna

1668Fors.- og atvmrh. (Tryggvi Þórhallsson):

Brtt. um nýtt læknishérað í Hrútafirði liggur alls ekki hér fyrir og verður ekki borin fram við þessa umr. Er því engin ástæða til að taka málið af dagskrá hér eða tefja það hennar vegna. Ég mun geta komið henni að í hv. Ed., ef mér sýnist svo. Upplýsingar þær, sem hv. þm. gaf um mannfjöldann þarna norður frá, voru mjög ófullnægjandi. Hann gekk aðeins út frá mannfjölda í tveimur hreppum, en það er ekki minnsti vafi á, að svo framarlega sem læknir kæmi á Borðeyri, þá myndi hann sóttur t. d. úr Laxárdalsög Haukadalshreppum í Dalasýslu, a. m. k. að einhverju leyti. Einnig myndi hann í mörgum tilfellum verða sóttur fram í Miðfjarðardali.

Um hitt atriðið, að rétt væri að leita álits héraðsbúa í Nauteyrarhreppi um læknissetrið, virðist hv. þm. sammála mér, en hann hélt því bara fram, að það væri búið að því. En við vitum baðir, hve miklu minna er að marka undirskriftasmölun, sem safnað er, og þá aðeins frá annari hlið, heldur en atkvgr., sem fer fram á fundi, eftir að málið hefir verið sótt og varið frá báðum hliðum. Ég tel því brtt. hv. 2. þm. Skagf. um að leggja málið undir atkvgr. héraðsbúa, fullkomlega réttmæta.