23.04.1932
Neðri deild: 58. fundur, 45. löggjafarþing.
Sjá dálk 1625 í B-deild Alþingistíðinda. (1669)
36. mál, skipun læknishéraða, verksvið landlæknis og störf héraðslækna
Magnús Guðmundsson:
Mér finnst hv. þm. Ísaf. óþarflega ráðríkur, er hann vill fá þessa stóru lagabálka sína samþ., án þess að nokkur brtt. við þá fái að komast að. A. m. k. verður hann að sætta sig við, að þær komi fram. Hann getur verið ánægður, ef hann fær þær allar drepnar.
Hann sagði, hv. þm., að það væri ekki skylda fyrir hreppa að leggja fram fé til læknisbústaða. Ég veit það vel, að það er ekki lagaskylda, en einhvern veginn verður að leysa það mál. Get ég því vel búizt við, að svo framarlega sem hann verður áfram landlæknir, þá liði ekki á löngu, áður hann komi fram með frv. í þá átt að skylda íbúa læknishéraðanna til þess að taka þátt í kostnað við byggingu læknisbústaða, því að ég get búizt við, að hann reki sig fljótlega á það, að ekki sé gott, þegar heilir hreppar skorast undan að taka þátt í heim kostnaði.
Um atkvgr. um læknissetrið í Nauteyrarhéraði verð ég að segja, að ég fæ ekki séð, að nein hætta sé á ferðum, þó að héraðsbúum sé gefinn kostur á henni. Ef það er rétt, sem hv. þm. heldur fram, að hún hafi þegar farið fram, þá er engin hætta á, að héraðsbúar óski eftir henni aftur. Og sé hv. þm. viss í sinni sök, um að meiri hl. vilji hafa læknissetrið í Ögri, þá er engin hætta, þó að atkvgr. fari fram af nýju.
Ég skil vel, að þessi færsla Súðavíkurhrepps milli læknishéraða sé gerð til þess að jafna á milli héraðanna. Það er að vísu ástæða, en ekki fullnægjandi, því að ef farið væri út í þá sálma að jafna á milli læknishéraðanna og gera þau öll jöfn, þá er ég hræddur um, að víða yrði kurr.
Að símasamband sé svo gott þarna vestur frá, að það kosti engin aukaómök að ná í lækni frá Ísafirði, trúi ég ekki.
Þá sagði hv. þm., að læknirinn á Ísafirði óskaði ekki eftir að losna við Súðavíkurhrepp úr umdæmi sínu, en ég skildi hv. þm. einmitt svo í fyrstu ræðu hans, að læknirinn væri ófús að fara, þegar hans væri vitjað úr Súðavíkurhreppi, af því að hann hefði svo mikið að gera á Ísafirði.
Það kom við hjartað í hv. þm., þegar honum var bent á, að þetta ákvæði í frv., að vitja mætti jafnt læknis í tvær attir, væri því nær einsdæmi í íslenzkri löggjöf. Hann nefndi Kjósarsýsluna til samanburðar, en aðstaða hennar er alls ekki sambærileg við það, sem hér á sér stað. Kjósarsýslubúar hafa sérstakan lækni hér í Reykjavík og dettur því aldrei í hug að fara til Hafnarfjarðar, en íbúar Súðavíkurhrepps mundu sennilega fyrst leita til Ísafjarðar, en að því frágengnu til hins læknisins. Þetta er því ekkert sambærilegt.