27.04.1932
Neðri deild: 61. fundur, 45. löggjafarþing.
Sjá dálk 1663 í B-deild Alþingistíðinda. (1706)

217. mál, flugmálasjóður Íslands

Jón Ólafsson:

Hv. frsm. meiri hl. sagði, að ekkert nýtt hefði komið fram í ræðum okkar andstæðinga hans í þessu máli. En ég verð að segja það, að ég veit ekki, hvað hann kallar nýtt, ef það er ekki nýtt, þegar honum er synt fram á fjárhagsatriði málsins frá öllum húsum, því nál. ber með sér, að þeir hafa ekki athugað þá hlið nokkurn hlut. Ef þetta er ekki nýtt fyrir honum, þá hefir hann gegn betri vitund verið með fullyrðingar um, að þetta væri engin fjárhæð og að þennan atvinnuveg munaði ekkert um það. Ég hefi aldrei veitzt að forgöngumönnum félagsins, og geri það aldrei, því að ég veit, að þeim gengur gott eitt til, og ég get sagt um þá, sem stóðu fremstir í að koma félaginu á, að þeir hafa sýnt þar óvenjulegan dugnað og unnið ótrauðlega. Hv. frsm. meiri hl. segist halda fluginu fram vegna framtíðarinnar. En ég held, að það hafi verið bent á það oftar en einu sinni, að eins og félagið var stofnað á veikum fjárhagslegum grundvelli upphaflega, mundi því ekki verða langra lífdaga auðið, og þó þessi skattur yrði lagður á, þá væri það ekki nærri nóg til að halda slíku gangandi, og mundi þá aftur verða flúið í ríkissjóð til að fá styrk. Ég er alveg hissa á því, hvað hv. frsm. meiri hl. virðist vera bljúgur fyrir þessu ameríska fyrirtæki, sem hann er hér að tala um, og hvað hann sýnist sanntrúaður á, að þetta sé það bjargrað, sem við þurfum í þessum fjárhagslegu vandræðum. Ég held, að þó okkar ágæti vestur-íslenzki maður, Guðmundur Grímsson, eigi alla virðingu skilið, þá megum við vera fullkomlega tortryggnir og viðhafa fulla athugun á slíku máli, en ekki láta stjórnast af hrifningu, svo sem hv. frsm. meiri hl. virðist gera. Ég er hræddur um, að þeir muni teyma ýmsa nokkuð á eyrunum, eins og talsvert ber á í þessu máli. Ég get ekki skilið þessa hrifningu yfir því að veita þeim þessi flugréttindi hér á landi. Ég þekki ekki fjárhag þess félags, sem Guðm. Grímsson hefir umboð fyrir. En trúað gæti ég því, að ameríska gullið væri máske meira í orði en á borði, og gæti því vel svo farið, að flugskattur okkar gufaði upp í góðmótlegum áætlunum og umtali um væntanlegt flug.

Ég sé svo ekki ástæðu til að fara fleiri orðum um þetta, en ég vona, að hv. þm. líti í kringum sig áður en þeir halda fram þessum skatti á þessum bágstadda útvegi.