27.04.1932
Neðri deild: 61. fundur, 45. löggjafarþing.
Sjá dálk 1668 í B-deild Alþingistíðinda. (1711)
217. mál, flugmálasjóður Íslands
Pétur Ottesen:
Út af því, sem hv. 1. þm. S.-M. var að tala um, að ameríska flugfélagið mundi gripa í tómt og verða gabbað, ef skatturinn til flugmálasjóðs yrði afnuminn, þá skildi ég hv. þm. svo, að hann teldi, að Alþingi væri að gabba þetta félag. Þess vegna spurði ég, hver hefði leyft sér slíka djörfung að gera félaginu slík boð fyrir hönd Alþingis. Nú hefir hv. frsm. meiri hl. þvegið hendur sínar og gefið ávísun á formann Flugfél. Íslands um þetta atriði. En ég verð nú að segja, að ég held, að Alþingi komi það lítið við, þó að formaður Flugfél. Íslands hafi gert eitthvert slíkt tilboð sem þetta; til þess hafði hann ekkert umboð frá Alþingi.