30.04.1932
Neðri deild: 64. fundur, 45. löggjafarþing.
Sjá dálk 1671 í B-deild Alþingistíðinda. (1722)

217. mál, flugmálasjóður Íslands

Frsm. meiri hl. (Sveinn Ólafsson):

Aðeins nokkur orð í framhaldi af því, sem tekið var fram í gær af minni hendi um frestun málsins. Ég verð að lýsa yfir því, að ekkert ákveðið samkomulag hefir komizt á um meðferð þess, þrátt fyrir tilraunir þær, sem gerðar voru. Aðeins get ég getið þess, að nokkrir menn tjáðu sig fúsa að fella niður eitthvað af útflutningsgjaldi síldar, ef þetta gjald fengi að standa óhaggað þar til endanlega væri búið að ganga frá samningum við hið vestræna flugfélag.

Ég tel enga ástæðu til þess að fara að endurtaka hér umr. þær, sem urðu um mál þetta við 2. umr. hér í d., því að ég tel heppilegast að hraða því eins og öðrum málum, sem illa þola bið, og læt því máli mínu lokið.