30.04.1932
Neðri deild: 64. fundur, 45. löggjafarþing.
Sjá dálk 1680 í B-deild Alþingistíðinda. (1725)

217. mál, flugmálasjóður Íslands

Vilmundur Jónsson:

Hv. þm. Dal. lét svo um mælt, að ísfirzku bátarnir hefðu haft mikið gagn af síldarleitinni, og gefur þetta mér tilefni til að segja hér nokkur orð, með því líka, að ég get skilað því frá sjómönnunum á Vesturlandi, að þeir lita ekki svo á þetta mál, og lögðu af þeim ástæðum fast að mér og einróma að fylgja frv. um afnam flugmálaskattsins.

Ég hygg og, að það liggi ljóst fyrir, að það er ekki af einskærri umhyggju fyrir síldarútgerðinni, að svo mjög er barizt fyrir málinu, heldur er þetta sprottið af því, að menn vilja stuðla að því, að þær tilraunir til flugferða, sem hér hafa verið gerðar undanfarið, falli ekki niður. Ég fyrir mitt leyti vil líka styðja að þessu, en það er skakkt að ætla sér að láta kostnaðinn mæða á síldarútveginum, enda öllum vitanlegt, að hann getur ekki borið þennan kostnað í þeim nauðum, sem hann er staddur. Ef menn vilja flytja þetta mál rétt, er leiðin sú, að leggja til, að 50 þús. kr. verði veittar beint úr ríkissjóði til styrktar flugferðunum, en ekki að taka þetta af síldarútgerðinni, sem ekki getur lagt það á sig, jafnvel þótt síldarleitin geti komið að gagni, eins og ég ætla að sé. Það mun þá rétt hermt, að sjómenn og útgerðarmenn kunna ekki að meta síldarleitina enn sem komið er, og ég ætla, að augu þeirra muni þá fyrst opnast fyrir þýðingu hennar, þegar skortur verður á síldinni, en svo hefir ekki verið þessi ár, sem síldarflugið hefir verið reynt, heldur má þvert á móti segja, að of mikið hafi verið um síldina þessi ár, meira en atvinnurekstrinum hefir verið hollt með því skipulagi, sem á honum er.

Ég get og ennfremur skilað því frá sjómönnum og útgerðarmönnum á Ísafirði, að þeir líta svo á, að heppilegast muni vera eins og sakir standa að sameina síldarleitina landhelgisgæzlunni fyrir Norðurlandi. Telja þeir nauðsynlegt að hafa 2 skip við landhelgisgæzluna þar á síldartímanum, og að nægja muni að fela skipunum jafnframt að athuga síldargöngur og gefa úr tilkynningar um þær.

Hv. þm. Dal. drap á, að bílferðirnar hefðu átt erfitt uppdráttar til að byrja með, þó að þær hefðu nú rutt sér til rúms svo mjög sem raun ber vitni. Þetta er rétt, og víst hefði verið ástæða til að gefa þeim tilraunum meiri gaum og þörf á að styðja þær, en ég geri ráð fyrir því, að hv. þm. Dal. hafi verið umkomulítill piltur í þann mund, er Magnús á Grund var að gera sínar fyrstu tilraunir með bíla, og hefði því ekki verið sanngjarnt að heimta af honum, að hann styrkti þessar tilraunir, svo merkilegar sem þær þó voru. Gegnir alveg sama máli um síldarútveginn nú, sem er svo umkomulítill, að hann ekki hefir ráð á að styrkja þessar tilraunir, og hefir heldur ekki meiri skyldur gagnvart flugferðum en hv. þm. Dal. hafði gagnvart hinum fyrstu tilraunum með bifreiðar hér á landi, þó að bifreiðar komi nú honum að gagni ekki síður en öðrum.