30.04.1932
Neðri deild: 64. fundur, 45. löggjafarþing.
Sjá dálk 1688 í B-deild Alþingistíðinda. (1729)
217. mál, flugmálasjóður Íslands
Pétur Ottesen:
Ég held, að það sé nú komið greinilega í ljós, að það hafi verið rétt hjá þeim, sem voru því andstæðir í gær, að málið væri tekið út af dagskrá, að tilgangurinn væri sá, að tefja fyrir málinu. Nú er liðið nokkuð á annan sólarhring síðan málið var tekið út af dagskrá. Það hefði því mátt vænta, að ef tilgangurinn með því að taka málið út af dagskrá hefði verið sá, að fá tækifæri til að bera fram brtt. — og hann gat ekki verið annar en sá að tefja fyrir málinu —, að einhver brtt. væri nú fram komin. (BJ: Til þess að undirbúa málið). Var ekki hægt að gera það í gær? ég veit, að það er mikil „agitation“ hjá ýmsum mönnum, ekki einasta innan þings, heldur líka utan þings. Það hefir oft verið svo áður hér á þingi, þegar um flugmál hefir verið að ræða, að þá hafa menn utan þings gengið hér um göturnar og ganga þingsins og skrifað niður nöfn þm. og sagt: þennan og þennan á ég, hann er mín eign í þessu máli. — Þetta hefir verið ein af aðferðunum, sem notaðar hafa verið í þessari „agitation“. Ég ætla, að það sé langt fyrir neðan virðingu þingsins, svo framarlega sem þingið hefir nokkra tilfinningu fyrir því að vera það, sem það á að vera, að gefa mönnum færi á að nota sjálfa sig og sína sannfæringu upp á þennan máta.
Mér er alveg ráðgata, hvernig nokkur maður getur haft þrek til þess að vera að tala almennt um flugferðir í sambandi við þetta frv. Það mótmælir því enginn, að flugferðir geti komið að miklu haldi í framtíðinni. Um þetta er ekki deilt. Það er fundið upp af mótstöðumönnum þessa frv. að færa umr. inn á þetta svið. En að því leyti, sem æskilegt má telja að halda uppi flugferðum og veita styrk til þess, þá á sá styrkur að koma úr ríkissjóði, en ekki skylda eina stétt manna til að halda flugferðunum uppi á sinn kostnað. Þetta hefir verið sýnt svo glöggt, að það er alveg út í hött að vera að tala um flugferðir á almennum grundvelli í sambandi við þetta frv. Flugmálasjóður var á sínum tíma stofnaður til þess að fá reynslu um það, að hverju gagni síldleitarflug gæti orðið fyrir síldveiðarnar. Nú er það, að því er helzt verður vitað, einróma álit allra útgerðarmanna, sem við síldveiðar fást, að þetta síldarflug hafi ekki komið að neinu gagni. Nú hefir það verið dregið í efa, að við, sem tölum máli síldveiðimannanna, höfum gögn, er sanni þessa fullyrðingu. Það er rétt, að við höfum ekki komið fram með skjól, er sýni þetta. En það út af fyrir sig eru þó engin rök gegn því, að við flytjum rétt mál. Þó ekki hafi verið sendar áskoranir til þingsins, þá er það þó eftir beiðni og samkv. fundarsamþykktum síldveiðimannanna, að við flytjum þetta mál. Á síldveiðastöðvunum fyrir norðan hafa verið samþ. till. um að fella niður flugskattinn. Og hv. þm. Ísaf. og hv. þm. Vestm. hafa skilað hinu sama hvor frá sínum umbjóðendum. Sama get ég sagt. Er því engin ástæða til og hreint ekki leyfilegt að halda í flugskattinn gegn vilja allra þeirra, er eiga að greiða hann og telja sig ekkert gagn hafa af síldleitarflugi.
Ég sé ekki ástæðu til að fara fleiri orðum um þetta. Ég tel víst, að frv. verði samþ. Það var samþ. við 2. umr. með 12:7 atkv., sem stafaði af því, að þm. voru þá fjarstaddir. Nú eru þeir fleiri viðstaddir, en ég tel víst, að þeir, sem fjarstaddir voru við 2. umr., skiptist í svipuðum hlutföllum og hinir, og að samþykkt frv. sé þar með trygg. Enda væri það vansæmd fyrir Alþ. að verða ekki við þeim óskum sjómannanna að fella þetta gjald niður.
Hv. þm. Dal. talaði um, að þessi skattur væri svo lítill, 10 aurar á tunnu, að útgerðina munaði lítið um að greiða hann. Ég benti nú á það við 2. umr., að þar, sem bezt hefði látið, hefði síldveiðimennirnir fengið sem svaraði 5 aura af tunnu, eða helmingi lægri upphæð en skatturinn er. Hv. þm. Barð. talaði og um, að sá atvinnurekstur væri ekki fær og ætti engan rétt á sér, sem ekki gæti borið þetta gjald. En hvernig hefir nú verið að þessum atvinnuvegi búið með skattgreiðslum af hálfu löggjafarinnar? Það hefir orðið að greiða kr. 1,50 útflutningsgjald af hverri tunnu, og þá hefir flugskatturinn komið til viðbótar við það. Þetta gjald hefir nú að vísu verið lækkað úr kr. 1,50 niður í kr. 1,00. En þrátt fyrir það eru þó útflutningsgjöld af þessari vöru þrem sinnum hærri en af nokkurri annari útflutningsvöru. Miðað við 20 kr. söluverð á tunnu ætti þessi skattur að vera 32 aurar á tunnu, ef hann ætti að vera í samræmi við önnur útflutningsgjöld.
Þeir, sem telja réttmætt, að haldið sé uppi flugferðum hér á landi og meina það í raun og veru, ættu að fara aðra leið til að styrkja þær framkvæmdir. Slíkar almennar flugferðir ætti þá að styrkja úr ríkissjóði og styrk til þeirra ætti þá að setja inn í fjárlög. En hinu má eigi fram halda, að skattleggja eina stétt manna til almennra þarfa. Þetta hefði þm. átt að vera fyrir löngu orðið ljóst en ekki fyrst í sambandi við þetta frv., sem miðar að hv í einu að létta skatti af einni stétt manna, sem á hana var lagður vegna starfsemi, sem ekki hefir reynzt heim atvinnuvegi til neinna hagsbóta eða gagnsemi. — ég verð því að enda ræðu mína með því að snúa við þeim ummælum, sem hv. þm. Dal. endaði sína ræðu með, nefnil. þeim, að óska þess, að deildin viki þessum kaleik frá með því að fella frv. — og skora á hv. deild, að víkja þeim kaleik frá síldveiðimönnum að borga þennan skatt lengur í flugmalasjóð – og samþykkja frv.