02.05.1932
Neðri deild: 65. fundur, 45. löggjafarþing.
Sjá dálk 1708 í B-deild Alþingistíðinda. (1769)
288. mál, varnir gegn berklaveiki
Vilmundur Jónsson:
Mér er ljóst, að það er ekki vel við eigandi að nota orðin stjórnarráð í þessu sambandi. En það er gert í öllum þessum lagabálki, og hefði því þurft að breyta þessu orði alstaðar í lögunum, en það virtist mér of mikil fyrirhöfn. Ég held, að þetta verði að standa líka í þessum liðum 14. gr., og mun ég þess vegna ekki flytja brtt. um þessi orðaskipti þar.