24.02.1932
Neðri deild: 9. fundur, 45. löggjafarþing.
Sjá dálk 1711 í B-deild Alþingistíðinda. (1783)

35. mál, lækningaleyfi

Flm. (Vilmundur Jónsson):

Ég geri ekki ráð fyrir, að ágreiningur verði um það, að þörf sé á ýtarlegum lögum um réttarstöðu lækna í þjóðfélaginu og annara þeirra, sem fást við lækningar. Um það efni eru ekki til nein lagaákvæði, nema í lögunum frá 1911, en þau lög eru ákaflega stutt, dákveðin og ófullnægjandi.

Um undirbúning þessa frv. er það að segja, að ég hefi samið það eftir beztu getu, og stuðzt við góðar erlendar fyrirmyndir. Síðan sendi ég það í tvo staði til yfirlits; í fyrsta lagi til læknadeildar háskólans, til þess að hún athugaði það, aðallega frá fræðilegu sjónarmiði, og í öðru lagi til Læknafélags Ísl., til þess að það færi yfir það og athugaði, aðallega frá hagsmunasjónarmiði læknanna sjálfra. Það má segja, að um frv. hafi orðið gott samkomulag milli allra þessara aðilja, og er ekki neinn ágreiningur, sem máli skiptir, nema um þau atriði, sem sérstaklega er tekið fram um í grg. frv. Hávaðinn af ákvæðum frv. mun heldur yfirleitt ekki orka tvímælis, enda er málið þaulrætt úti í löndum, og frv. í samræmi við það, sem þar gerist í þessum málum. Það eru því aðeins örfá atriði, sem hugsanlegt er, að geti valdið deilum. Væntanlegri n. til athugunar skal ég nú geta um þau helztu nýmæli, sem hér er um að ræða:

Fyrst er þá það, að lagt er til að breyta því fyrirkomulagi, sem nú er, að allir þeir kandidatar, sem útskrifast frá háskólanum, fái um leið óskoraðan rétt til að fást við lækningar hér á landi. Þessu er lagt til að breyta svo, að eftir frv. fá þeir ekki þennan rétt, nema sérstakt leyfi heilbrigðisstj. komi til. Í frv. því, sem liggur fyrir danska þinginu og minnzt er á í grg. frv., er lagt til að taka upp þetta fyrirkomulag þar í landi. Þykir þetta miklu tryggara til að fyrirbyggja það, að óhæfur maður komist í læknisstöðu, en prófið eitt. Þeir, sem dæma við próf, geta varla litið á annað en þekkingu þess, sem prófið tekur. En það er augljóst, að þó ekki sé um þekkingarskort að ræða, getur maðurinn haft ýmsa aðra galla, sem gera hann óhæfan til að fást við lækningar, enda er kennurum háskólans þetta vel ljóst, hafa séð þess dæmi og draga ekki dul á.

Sama er að segja um sérfræðingana. Eftir frv. eiga læknar ekki að mega kalla sig sérfræðinga, nema með leyfi heilbrigðisstj., en áður gerðu þeir það eftir ákvörðun stéttarfél. síns. Að vísu hefir ekki verið kvartað um, að þetta hafi komið að sök, en það virðist þó tryggara, að ákvörðun um það heyri undir heilbrigðisstj., enda er það í meira samræmi við ákvæði frv. um veitingu leyfa til almennra lækninga. Einkanlega virðist það réttmætt eftir að sérfræðingum hafa verið tryggð í löggjöfinni ýms sérréttindi fram yfir aðra lækna, eins og í frv. er gert ráð fyrir, og þ. á. m. hærri greiðslur fyrir störf sín.

Þá eru ýms ákvæði um hegðun og framferði lækna, sem almennt eru tekin upp í reglur félagsskapar sjálfra þeirra, en erlendis er ekki siður, að kveðið sé á um með öðrum hætti. En eins og tekið er fram í grg., er hér meiri þörf á að binda slíkt í lögum, því að vegna þess, hve stéttin er fámenn, og kunningsskapur þar af leiðandi mikill innan hennar, verður miklu erfiðara að halda uppi góðum reglum hér en þar, sem félagsskapurinn er stærri og kunningsskapurinn minni og er ekki laust við, að borið hafi á því. Læknafél. Ísl. er fylgjandi þessum ákvæðum og gerði till. um að auka þau á ýmsan hátt. Var tekið tillit til velflests, ef ekki alls þess, sem það lagði til um þau atriði.

Enn er það nýmæli, að hver almennur praktiserandi læknir, sem hefir opna lækningastofu, sé skyldur að gegna læknisvitjunum innan vissra takmarka. Þetta er alveg nauðsynlegt, því að þar sem praktiserandi læknir er í kaupstað, hefir hann alltaf stóran viðskiptamannahóp, sem reiðir sig á hann og þarf helzt að geta átt sama tilkall til hans og héraðslæknisins, sem ekki er hægt að búast við, að öllu geti annað. Einkum er Rvík höfð hér í huga, og er ekki hægt að segja, að Reykvíkingar með einn héraðslækni, eigi, án slíkra ákvæða, lagakröfu á læknishjálp í áttina til þess að vera fullnægjandi. Auk þess ber nauðsyn til að leysa héraðslækninn í Reykjavík undan almennri gegningarskyldu vegna embættanna, og liggja till. um það fyrir þinginu í öðru frv. Læknar munu ekki kunna þessu ákvæði illa. Þeir vilja flestir hafa sem mest að gera, svo að þetta ætti að vera og er þeim áreiðanlega ljúf skylda. Læknar í Rvík hafa og skilið þessa skyldu, því að þeir hafa gert samtök um læknavörð, sem sé alltaf til taks, þegar ekki er almennt hægt að ná í lækna. Í frv. er líka gert ráð fyrir, að læknir í kaupstað eða kauptúni losni við gegningarskylduna, ef hann tekur þátt í samtökum lækna um læknavörð á nóttum og helgidögum, þ. e. a. s., þann tímann, er vörðurinn situr.

Þá er það atriðið, sem hefir verið mjög mikið deilumál, a. m. k. erlendis, en það er um þagnarskyldu lækna og einkum vitnisburðarskyldu þeirra fyrir rétti. Læknar krefjast þess yfirleitt að fá að vera lausir við að bera vitni fyrir rétti um einkamál sjúklinga sinna. Lögfræðingar vilja ekki viðurkenna þetta, og gilda um þetta mjög mismunandi lagaákvæði í ýmsum löndum. Sumstaðar er læknum beinlínis bannað að bera vitni fyrir rétti um einkamál sjúklinga sinna, sumstaðar er þeim heimilað það undir vissum kringumstæðum, og enn annarsstaðar er það eins og hér, að Læknar hafa enga sérstöðu að þessu leyti. Ég hefi reynt að finna milliveg í þessu máli og kosið sömu leið og n., sem um rétta mál fjallaði í Danmörku, til undirbúnings frv., sem um hefir verið getið, að ekki sé heimilt að krefja lækna vitnisburðar fyrir rétti um einkamál sjúklinga þeirra, ef sjúklingar ekki leyfa það sjálfir, nema eftir sérstökum úrskurði dómarans í hvert sinn, og aðeins þá, er það getur oltið á vitnisburði læknisins, hver úrslit málið fær, enda hafi það þýðingu fyrir málsaðila eða þjóðfél. Ég minnist á það í grg., að læknar hér kjósa helzt að vera lausir við þetta, og kemur það til álita í hv. n. og hv. d., hvað rétt sé að gera í þessu efni.

Þá er hér ætlazt til, að í fyrsta sinni sé ákveðið í lögum um skyldu lækna til að leitast við að afstýra þeirri hættu, sem af sjúklingi hans getur stafað undir sérstökum kringumstæðum. Hingað til hefir sjálfsagt hver læknir reynt í kyrrþey og án hávaða að gera þetta, og á því fer jafnan hezt. Náttúrlega er ekki ætlazt til, að læknar hafi víðtækar lagaskyldur í þessu efni, og eru þær skýrt afmarkaðar í frv. En vel er hugsanlegt, að um svo mikla og augljósa hættu geti verið að ræða, að sjálfsagt sé að heimta það sem lagaskyldu af læknum, að þeir leitist við að afstýra henni, jafnvel þó að það kosti atok. Og þá er gott fyrir lækninn að hafa lagaákvæði um, hvernig hann á að haga sér, til hvers hann er skyldugur og út yfir hvaða takmörk hann á ekki að fara.

Þá vil ég minnast á eitt atriði enn, en Það er ákvæði í frv. um gjaldskrá fyrir praktiserandi lækna. Þetta er aðalágreiningsefnið milli mín og Læknafél. Íslands, sem óskaði mjög ákveðið, þ. e. a. s. stj. þess, að þetta væri óbundið sem hingað til. Hún getur fallizt á gjaldskrá fyrir praktiserandi lækna, að svo miklu leyti sem þeir vinna fyrir hið opinbera, en taldi fjarstætt, að löggjöfin legði að öðru leyti verð á vinnu þeirra fremur en annara manna embættislausra, og er þetta tekið fram í grg. Þó eru mjög margir læknar, sem vilja annaðhvort hafa gjaldskrá fyrir alla lækna eða enga, og vilja ekki gera neinn greinarmun á embættislæknum og embættislausum í þessu efni. Ég geri ráð fyrir, að þetta ágreiningsmál verði nákvæmlega athugað af væntanl. hv. n. og hv. þdm. yfirleitt.

Enn eru skottulækningar bannaðar frekar en áður hefir verið, og jafnframt leitazt við að skilgreina, hvað skottulækningar séu. Er sú skilgreining nokkru víðtækari en áður hefir tíðkazt, og undir skottulækningar látnar heyra ýmsar yfirsjónir, sem lærðir læknar geta gert sig seka um. Læknafél. kann því ekki allskostar vel, þó að það leggi ekki á það verulega áherzlu. Enda held ég slíkt óþarfa viðkvæmni. — Ennfremur eru ákvæði, sem banna almennar auglýsingar lyfja. Þessu er beint gegn skrumauglýsingum. Þar sem ekki er hægt að kveða á um, hvað séu skrumauglýsingar, þótti greinilegast að banna allar lyfjaauglýsingar. Læknfél. Rvíkur hafði gert sérstaka samþykkt um þetta fyrir nokkru og óskaði eftir, að hún yrði tekin til athugunar af heilbrigðisstj. Milli lækna er enginn ágreiningur um þessa nauðsyn.

Loks eru ákvæði um, að svipta megi lækna lækningaleyfi, og virðist þar vera tryggilega um búið og betur en nú er, ekki sízt það, að læknar séu ekki sviptir lækningaleyfi að ástæðlausu.

Ég fer svo ekki frekar út í einstakar greinar frv. að þessu sinni, en læt það bíða þangað til við síðari umr. Ég legg til, að frv. verði að þessari umr. lokinni vísað til hv. allshn.