24.02.1932
Neðri deild: 9. fundur, 45. löggjafarþing.
Sjá dálk 1727 í B-deild Alþingistíðinda. (1787)
35. mál, lækningaleyfi
Pétur Ottesen:
Það fór mjög að vonum, að hv. flm. þætti við hv. 1. þm. S.-M. færast helzt til mikið í fang, er við ætluðum okkur þá dul að ræða um þessi mál við hann. Andsvör hans voru þess vegna ósköp einföld: við skyldum bara þegja um þessa hluti, því að við hefðum ekkert vit á þeim. Ég vil nú segja þessum hv. þm. það í allri góðsemi, að hann ætti sízt hann veg að mæla, því að þó að honum hafi, fyrir óskiljanlega viðburðanna rás, skolað upp í landlæknisembættið, þá má hann ekki fyrir þá sök eina ætla, að hann sitji inni með alla veraldarinnar vizku í þessum efnum, og að honum líðist að vaða uppi með embættis- og lærdómshroka hér innan vébanda þingsins, því að enn hefir hann ekki sýnt þá yfirburði né unnið þau kraftaverk og stórvirki, sem réttlæti slíka framkomu. Við hv. 1. þm. S.-M. munum þess vegna ekki kippa okkur upp við það, þó hv. flm. tali digurbarkalega og þyki litið koma til okkar vitsmuna. Við höfum hér kynnzt nýrri hlið á þessum hv. þm., sem gerir okkur sterkari í allri viðureign við hann.
Hv. flm. sagði, að smáskammtalækningar væru hvergi bannaðar í þessu frv., og að þeir, sem stunda vildu þessar lækningar, gætu leitað leyfis til þess hjá heilbrigðisstj. og hún dæmt um hæfileika þeirra til þess. En ég vil nú spyrja: Hvaða þekkingu hafa nú þessir hálærðu menn til þess að dæma um þekkingu smáskammtalæknanna? Ekki hina minnstu. Slík fræði liggja mjög fyrir utan þeirra lærdóms- og þekkingarsvið, og mér hefir virzt þeir yfirleitt eiga nóg með að grípa yfir öll þau bóklegu fræði, sem fyrir þá eru lögð, og þótt menn þessir séu útþandir af bókviti og hverskyns speki og vísdómi, þá er þeim alls ekki ætlanda, að þeir geti dæmt af fullri sanngirni og þekking um smáskammtalæknana og þeirra aðferðir. Ég er ekki í nokkrum vafa um það, hvernig dómar þeirra myndu falla. Auk þess ber þess að gæta, að læknarnir myndu beinlínis hafa hvöt til að halla á smáskammtalæknana í úrskurðum sínum, vegna samkeppninnar við þá og til þess að reyna að ryðja þeim úr vegi. Það er því ætlun mín, að þessir menn yrðu með þessu algerlega útilokaðir, og að engin trygging sé fyrir réttlæti í úrskurðum hinna hálærðu lækna í þessum greinum.
Hv. flm. kvað það eðlilegt, að þessir menn yrðu að ganga undir eitthvert próf. Ja, það mætti svo sem setja lög um það, að t. d. mætti enginn sauma buxur, nema hann hefði staðizt próf í þeirri list, og að enginn mætti ganga í buxum, nema þær væru gerðar eftir nýjasta Parísarmóð og síðan saumaðar af útlærðum sérfræðingum. Ég nefni þetta bara sem dæmi.
Hv. flm. dró upp eina mynd af smáskammtalækni, svona sem dæmi upp á þá almennt. Maður þessi hafð verið kamarmokari í Rvík, en síðan flutzt norður í land og stundað lækningar par. Það er vel, að hv. flm. afhjúpaði með þessum orðum þá hugsun, sem liggur að baki þessum ákvæðum frv., og ætli það sé ekki einmitt þessi sama hugsun, sem er grundvöllur þeirrar andúðar, sem smáskammtalæknarnir eiga að mæta af hálfu þessara „fínu“, hálærðu lækna. Margir þeirra hafa þessar lækningar einungis í ígripum, og a. m. k. þeir, sem í sveit búa, verða oft að fást við það, sem hv. flm. kallar skítverk, það er að yrkja jörðina, hirða skepnur o. s. frv. og það er nú svo um mig og fleiri þm., að okkar daglegu verk heima fyrir eru nú þessi og önnur skítverk, sem hv. þm. kallar svo, og það er þess vegna ekki að vænta, að hv. flm. þyki mikið til okkar koma, né þess, sem við leggjum til málanna. Hv. flm. finnst víst, að áminnztur kamarmokari og hans nótar séu ekki til annars en skítverkanna. Það fór vel, að hv. flm. auglýsti innræti sitt og hugarþel gagnvart þeim borgurum þjóðfél., sem vinna líkamlega vinnu, og að þar með séu þeir óhæfir og einskis nýtir til annara starfa, og þessi ummæli hans skulu geymd, en ekki gleymd.
Mér þótti vænt um það, að hv. flm. varð að viðurkenna, að flestar af aths. mínum við frv. væru að gefnu tilefni af orðalagi greina frv. Þetta vil ég undirstrika, því hvað sem annars má um efni frv. segja, þá er það víst, að orðalag frv. er víða mjög óljóst og teygjanlegt, og ég vil enn skjóta því til hv. n., sem fær frv. til meðferðar, að hún reyni að orða frv. sem næst þeirri hugsun, sem liggur að baki þess. Sú skoðun er nú almennt viðurkennd, að lög beri að orða sem gleggst á alla lund, til þess að koma í veg fyrir öll tvímæli.
Út af 16. gr. frv., og í sambandi við það, er ólærðir menn gripu til einhverra bráðabirgðaaðgerða við veika menn, þá sagði hv. flm. það, að ef kólera geisaði t. d. uppi í Borgarfirði, þá gæti það verið hættulegt fyrir þjóðina, ef sjúklingi þar væri gefinn inn aspirínskammtur. Það er vitaskuld, að kólera getur verið hættuleg þjóðfélaginu, en að hún verði miklu hættulegri fyrir það, þótt sjúklingi sé, gefinn inn einn aspirínskammtur, það get ég með engu móti skilið. Það er nú einu sinni sá andi ríkjandi, að reynt sé að hjúkra veikum mönnum og draga úr þjáningum þeirra eftir því sem föng eru á, þangað til næst til læknis, og þá verður mönnum fyrst fyrir að neyta þeirra ráða, sem fyrir hendi eru og vel hafa þótt gefast. Og að ætla að fara að straffa menn fyrir slíkt, t. d. þótt manni með hitasótt sé gefinn aspirínskammtur, það nær vitaskuld engri átt. Og að lögfesta aðra eins fjarstæðu og þetta er vitaskuld fjarri öllum sanni.
Hv. flm. endaði ræðu sína á því, að í frv. væri vel séð fyrir rétti þeirra, sem lækningaleyfi væru sviptir, þar sem leyfissviptingin yrði að ganga gegnum þrjá hreinsunarelda. Í flestum tilfellum kann það að reynast svo, að réttur þessara manna sé fulltryggur, en brotið getur líka verið þess eðlis, eins og ég benti á áðan, að það liggi fyrir utan þau svið, sem þessir læknisfróðu menn bera sérstaklega skyn a. Í læknadeildinni er t. d. enginn lögfræðingur, og að því leyti t. d., sem atriði kann að varða lagalegt spursmál, þá eru læknarnir ekki dómbærir um það. Ég ætla því, að það sé ekki fjarri sanni, að með þessum ákvæðum frv. sé kippt burt nokkurri tryggingu fyrir rétti þessara manna, sem núv. löggjöf hefir að geyma.