24.02.1932
Neðri deild: 9. fundur, 45. löggjafarþing.
Sjá dálk 1730 í B-deild Alþingistíðinda. (1788)
35. mál, lækningaleyfi
Flm. (Vilmundur Jónsson):
Ég mun ekki hirða um að svara hv. þm. Borgf. nema fáu einu, enda höfum við nú nálgazt hvorn annan upp á siðkastið, eftir síðustu ræðu hans að dæma. Hann hefir nú horfið frá því, sem hann helt fram í fyrstu, að í frv. væru smáskammtalæknarnir kallaðir skottulæknar. Hann hefir talað máli smáskammtalæknanna, hvort sem þeir eru skottulæknar eða ekki, og tafið þá til skýjanna, og læt ég hann um bað. Hann taldi ýms tormerki á því, að smáskammtalæknar fengju lækningaleyfi samkv. þessu frv., og það má vel vera, að í mörgum tilfellum yrði þeim synjað um það, en varla að ófyrirsynju, eins og búið er um þá hnúta í frv. Það gæti að vísu komið hart niður á þeim, sem fyrir því yrðu, að fá ekki leyfið, en frá sjónarmiði þjóðfélagsins er með þessum ákvæðum verið að koma í veg fyrir alþjóðarhættu, sem vegur miklu meira en þó að einn og einn færi e. t. v. á mis við fulla sanngirni.
16. gr. frv. er sjálfsögð varúðarráðstöfun, til þess að girða fyrir það, að gagnslausar lækningatilraunir ófróðra manna tefji fyrir því, að leitað sé lækna, þegar um alvarlegri sjúkdóma er að ræða. Eða hvernig hyggst hv. þm. Borgf. að koma í veg fyrir slíka hættu? Að dæmi hv. þm. af aspirínskammtinum er ekki orðum eyðandi. Vitaskuld fellur slíkt ekki undir ákvæði þessara laga, ef að öðru leyti er leitað læknis án ástæðulausrar tafar.
Að það sé niðrandi um almenning að segja, að hann hafi ekki án alls lærdóms og undirbúnings vit á lækningum, get ég ekki tekið undir. Hitt er að mínu viti miklu meira niðrandi, að ætla almenning svo fáfróðan, að hann telji læknisstarfsemi ekki vandasamari en svo, að til hennar þurfi engan lærdóm né þekkingu.