24.02.1932
Neðri deild: 9. fundur, 45. löggjafarþing.
Sjá dálk 1731 í B-deild Alþingistíðinda. (1789)
35. mál, lækningaleyfi
Pétur Ottesen:
Hv. flm. segir, að ég sé að tala máli skottulæknanna. Ég hefi alls ekki minnzt á þá einu orði. Hv. flm. er að reyna að uppnefna smáskammtalæknana og kalla þá skottulækna (VJ: Þetta er tilhæfulaust.), í stað þess lögfesta heitið, sem þeir hafa í lögunum 1911 og í aldagamalli málvenju þjóðarinnar. Nú á ekki að unna þeim þessa heitis lengur, sem þeir nú hafa. Ef þýða á danska heitið, þá er skottulæknir e. t. v. nær því, og má vera, að hv. flm. hafi fremur kosið dönsku þýðinguna en hið ísl. lögfesta heiti, og að þangað megi rekja orsakir þessarar afbökunar.