14.04.1932
Neðri deild: 51. fundur, 45. löggjafarþing.
Sjá dálk 1751 í B-deild Alþingistíðinda. (1814)

35. mál, lækningaleyfi

Sveinn Ólafsson:

Hv. flm. hefir borið fram skrifl. brtt. við brtt, mína á þskj. 250, um það, að í stað orðanna „Rétt til að stunda lækningaatvinnu“, komi: Rétt til að stunda lækningar. Ég geri ráð fyrir því, að þetta muni óþarft vera, þar sem það mun skilið hvorttveggja á sama hátt, að „fást við lækningar“ og „stunda lækningar“.

Það er rétt, að þeir, sem lækninga-atvinnu stunda, eiga að hafa leyfi heilbrigðisstj. til þess, en lækningar stunda oft menn án þess leyfis. þess er að gæta, að þegar menn, sem lítt eru lækningafróðir, leggja stund á slíka vinnu, gera þeir sér það sjaldnast að atvinnu, en vinna ókeypis og í greiðaskyni. Slíkir menn hafa oft mikla lífsreynslu, og margir þeirra kynna sér ýmsar lækningaaðferðir, og mér finnst það illa viðeigandi að gera þeim torveldara með framkvæmd líknarstarfa sinna en þörf er á.

Ég legg því ákveðið á móti skrifl. brtt. hv. flm. og tel fullkomlega óhætt að samþ. mína till. óbreytta.