19.04.1932
Neðri deild: 55. fundur, 45. löggjafarþing.
Sjá dálk 1754 í B-deild Alþingistíðinda. (1819)

35. mál, lækningaleyfi

Ólafur Thors:

Við 2. umr. vakti ég athygli á bréfi, sem Læknafél. Rvíkur hefir sent Alþ., og las úr því örfá orð. En þar sem ýmsir hv. dm. eru nú viðstaddir, sem þá voru hvergi nærstaddir, vil ég leyfa mér að lesa lítið eitt af því aftur.

Í upph. bréfsins er frá því skýrt, að læknafélagið hafi haldið fund í tilefni af þessu frv. og öðru, sem líka liggur fyrir þinginu nú. Svo segir frá því, að á fundinum hafi verið samþ. með samhlj. atkv. svofelldar tillögur:

„Læknafélag Reykjavíkur leggur til, að frv. þau, er nú liggja fyrir Alþingi um lækningaleyfi og læknaskipun, verði vegna ónógs undirbúings ekki gerð að lögum á þessu þingi“.

„Læknafélag Reykjavíkur skorar á Alþingi, að skipuð verði 5 manna ólaunuð milliþinganefnd, þar sem 2 nefndarmanna séu læknar, annar almennur læknir, hinn sérfræðingur, til þess að undirbúa heildarlöggjöf um skipun heilbrigðismála landsins, þar með talin læknaskipun, veiting og afnám læknisréttinda“.

Þessum till. fylgir alllöng grg. Ég tel ekki ástæðu til að lesa hana upp alla í heild, en vil þó taka hér upp örfá orð, með leyfi hæstv. forseta:

„Af því, sem áður var sagt, er það fullkomlega tímabært, að ný löggjöf sé sett hér á landi í þessum efnum, en þeir lagabálkar, sem hér liggja fyrir, fullnægja ekki að vorum dómi þeim kröfum, sem áður voru nefndar. Þeir safna aðeins saman í eina heild nokkrum sundurlausum lögum án þess að laga ýmsa þá vankanta, sem nú eru á löggjöfinni, eða flytja nokkur þau nýmæli, er bæti úr svo brýnni þörf, að nokkru máli skipti, hvort þau verði að lögum á þessu þingi“.

Hv. d. kemst ekki hjá því að taka tillit til áskorana jafnmerkra manna og að þessu ávarpi standa, og það um mál, sem hv. þdm. verða að játa, að þeir beri ekki slíkt skyn á sem læknafél., að undanteknum hv. flm., sem hefir aðeins haft örfáa mán. til að vinna að málinu. Það er vitanlegt, að flm. þessa frv. hefir ekki getað lagt í undirbúning þess nokkuð svipað því eins mikla vinnu og talin er þurfa um undirbúning slíkrar löggjafar sem þessarar. Þetta mál er svo sérfræðilegt, að flestir hv. dm. geta játað kinnroðalaust, að þeir beri ekki fullt skyn á það, en hér liggja fyrir áskoranir frá sérfræðingum um að fresta þessu máli um eitt ár, og ættu allir hv. dm. að geta seð, að málinu er ekki stefnt í neinn voða með þeirri frestun. Ég held því , að hv. þdm. ættu að verða við ósk Læknafél. Rvíkur og afgreiða málið ekki á þessu þingi; ég vil því leyfa mér að bera fram svo hlj. rökst. dagskrá:

„Þar sem deildin telur æskilegt, að sett verð heildarlöggjöf um heilbrigðismál landsins, vandlega undirbúin af sérmenntuðum og þar til hæfum mönnum, svo sem gert hefir verið með nágrannaþjóðum vorum, en flm. þessa frv., hefir aðeins haft fáa mánuði til undirbúnings frv., telur deildin rétt að verða við einróma áskorun Læknafélags Reykjavíkur um að afgreiða málið ekki að þessu sinni, þar eð eigi verður séð, að nein vandkvæði geti af því hlotizt. Í vændum þess, að málið fái rækilegri undirbúning undir næsta þing, tekur deildin fyrir næsta mál á dagskrá“.