03.06.1932
Neðri deild: 92. fundur, 45. löggjafarþing.
Sjá dálk 553 í B-deild Alþingistíðinda. (182)
1. mál, fjárlög 1933
Frsm. fyrri kafla (Hannes Jónsson) [óyfirl.]:
Hv. fulltrúar jafnaðarmanna tala mikið um það, hversu illar horfur séu nú með atvinnu manna. Þessir hv. þm. hafa þó ekki viljað vila það fyrir sér að taka frá þessum mönnum þá litlu atvinnu, sem Alþingi vill þó veita þeim í fjárl., því að ef þeir hefðu fengið heim vilja sínum framgangt að fella tekjuaukafrv., þá er það vitanlegt, að ekki hefði verið hægt að framkvæma það, sem fjárl. gera ráð fyrir. Þetta vita þessir hv. þm. vel og vissu, þegar þeir voru að greiða atkv. á móti þessum tekjuaukum. Það er því hastarlegt, þegar þeir þykjast vera að bera þessa menn fyrir brjósti með því að vilja setja inn í frv. upphæð, sem er þó ekki nema nokkur hluti af því, sem þeir ætluðu sér að taka af þessum mönnum. Mér finnst, að hv. þm. ættu að líta nær sér, líta á þá þörf, sem verkamenn hafa á hjálp á yfirstandandi tímum og hvernig þeim verður bezt hjálpað, áður en þeir fara að koma fram með till. eins og þessar. Þeir eiga að hugsa út í það, hverjar afleiðingar það hefði haft fyrir verkamenn, ef till. þeirra hefðu náð fram að ganga á þessu þingi.