19.04.1932
Neðri deild: 55. fundur, 45. löggjafarþing.
Sjá dálk 1768 í B-deild Alþingistíðinda. (1824)

35. mál, lækningaleyfi

Magnús Guðmundsson:

Það er aðeins fyrirspurn til hv. flm., hv. þm. Ísaf., út af ákvæðum 16 gr. frv. Þar stendur, að heim, sem hafa takmarkað lækningaleyfi, er bannað að taka til meðferðar ýmsa nánar tiltekna sjúklinga eða sjúkdóma, sem sótthiti fylgir. Ég hygg, að meðal þessara manna, sem takmarkað lækningaleyfi hafa, séu tannlæknar.

Ef ég nú fæ tannpínu og sótthita, sem oft fylgir henni, og fer til tannlæknis í þeirri von að fá bót við þessu, en fæ aðeins þetta svar: Þú hefir hita og mér er bannað að gera nokkuð við þig, nema þú farir fyrst til annars læknis, þá verð ég að segja, ef þetta er rétt skilið, að mér þykir þetta ákvæði næsta undarlegt. Tannpína er oft þannig, að þeir, sem hana hafa, vilja ógjarnan þurfa að ganga á milli Heródesar og Pílatusar til að losna við hana.

Nú vildi ég spyrja hv. þm. Ísaf., hvort þetta er ekki rétt skilið.