03.06.1932
Neðri deild: 92. fundur, 45. löggjafarþing.
Sjá dálk 555 í B-deild Alþingistíðinda. (184)
1. mál, fjárlög 1933
Frsm. fyrri kafla (Hannes Jónsson) [óyfirl.]:
Fyrirspurn sú, sem hv. þm. Seyðf. beindi til mín, er alveg út í hött. Hann spurði, hvort stj. hefði ætlað að stjórna fjárlagalaust, ef fjárlfrv. hefði verið fellt á þessu þingi. Vitanlega hefði hún orðið að setja bráðabirgðafjárlög til þess að fara eftir. En það kemur ekki þessu máli við, sem hv. jafnaðarmenn hafa staðið að. Þeir hafa viljað fella niður öll tekjuaukalög og tekjuöflunarmöguleika á þessu ári, sem áttu að gera það mögulegt að framkvæma fjárlögin. Þetta veit hv. þm. mætavel. Hvorki hann sjálfur eða flokksbræður hans hafa á þessu þingi gert nokkra tilraun til þess að afla ríkissjóði tekna, svo að hægt væri að framfylgja fjárl. Og þá hlaut það vitanlega að koma niður á verklegum framkvæmdum ríkisins, og þeim liðum fjárl., sem ekki eru bundnir með sérstökum lögum, og rýra atvinnu verkamanna á þessu ári.