09.05.1932
Efri deild: 70. fundur, 45. löggjafarþing.
Sjá dálk 1810 í B-deild Alþingistíðinda. (1856)

35. mál, lækningaleyfi

Jakob Möller [óyfirl.]:

Út af því, að hv. 2. landsk. var að andmæla því, að það væri svipuð ástæða til þess, að læknum væri settur taxti og að setja taxta á almenn vinnulaun, þá vil ég segja það, að þegar um það er að ræða, hvort komi almenningi að meiri notum, þá er nær lagi að halda því fram, að það skipti það opinbera miklu meiru að setja taxta á almenn vinnulaun en á verk læknastéttarinnar. Það snertir ekki aðeins ríkið að því leyti, sem það borgar vinnulaunin sjálft, heldur engu síður og jafnvel miklu fremur að því leyti, sem atvinnuvegirnir borga of há vinnulaun. Það er þannig öll afkoma ríkisins undir því komin, að vinnulaunin séu ekki of há.

Atvinnurekstur landsmanna er nú með heim hætti, að á honum er alltaf stórtap, sem stafar ekki hvað sízt af því, að vinnulaun eru svo há, að það er ekki viðlit, að nokkur atvinnurekstur geti borið sig. Og það er svo sem auðséð, hvert það stefnir. Það er ekki lengur líf einstaklingsins, sem þá er í veði, heldur blátt áfram tilvera þjóðarinnar, ef slíku heldur áfram. Það væri því margfalt meiri alþjóðarnauðsyn að setja þetta á slíka vinnu en á vinnu læknanna. Og ef farið verður út á þá braut, þá styrkir það það, að þeirri kröfu, sem gerð var með vinnudóminum, verði haldið áfram og taxtar settir á fleiri vinnutegundir en hér er um að ræða.