09.05.1932
Efri deild: 70. fundur, 45. löggjafarþing.
Sjá dálk 1818 í B-deild Alþingistíðinda. (1863)

35. mál, lækningaleyfi

Jakob Möller [óyfirl.]:

Ég geri ekki svo miklar kröfur til hv. 2. þm. Eyf. eða hv. 2. landsk. og því síður til þessa sjúklings á pöllunum, að þeir geti skilið það samræmi, sem er á milli listaverkanna og læknisverkanna. Því sé ég ekki ástæðu til að fara lengra út í það mál. Þeir hlusta alveg rólegir á það, að þeim er sýnt fram á, að þetta hlýtur að leiða til þess að hækka lækniskostnað hjá fátæklingunum, og að þessar ráðstafanir verði til þess að hindra það, að snillingar geti skapazt meðal læknastéttarinnar. Þeir gera nánast grín að þeirri hlið málsins.

Mér þykir þetta undarlegt með sjúklinginn á pöllunum, og ég verð að játa, að mér finnst það líka dálítið undarlegt með hv. 2. landsk., sem ég hygg, að hafi orðið að leita út fyrir landsteinana vegna sjálfs sín. Annars er ekki ástæða til að ræða um það. (JBald: ég hefi aldrei leitað út fyrir landsteinana vegna sjálfs mín). Jæja, þá er það misskilningur, en það sýnir ekki víðan sjóndeildarhring hjá hv. þm., að hann skuli ekki geta skilið þetta, þótt hann hafi ekki sjálfur lent í því. En hvað snertir það, sem hv. 2. landsk. sagði, að hann „gerði ráð fyrir“, að þessi taxti yrði þannig, að læknum yrði leyft að taka hærra gjald af efnuðum en fátækum, þá tel ég, að það sé næsta óákveðin löggjöf, sem hv. þm. „gerir ráð fyrir“. Ég er sannfærður um, að það er ómögulegt að setja slíkan taxta, því að þá er það um leið komið á vald læknisins, hvaða taxta hann fer eftir í hvert skipti.

Bæði ég og hv. 1. landsk. höfum bent á, að afleiðingin af slíkum taxta yrði sú, að miklu harðar yrði gengið að fátæklingunum en áður.