15.04.1932
Neðri deild: 52. fundur, 45. löggjafarþing.
Sjá dálk 1828 í B-deild Alþingistíðinda. (1896)

165. mál, hafnarlög fyrir Reykjavíkurkaupstað

Jón Ólafsson:

Ég held, að andmæli þau, sem fram hafa komið gegn þessu frv. frá hv. þm. N.-Ísf. og hv. þm. Borgf., séu sprottin af misskilningi og þekkingarleysi á málinu. Ef þeir athuga brtt. hv. 2. þm. Reykv. á þskj. 241, sjá þeir, að það er í engu gengið á rétt hlutaðeigandi héraðs. Jarðaeigendur í nágrenni við Rvíkurhöfn hafa sinn óskerta rétt til að nytja og hafa mannvirki í sjó svo langt út frá, sínu landi sem netlög ná. En þeir, sem fylgzt hafa með því, hvernig vogarnir hér innar frá höfninni hafa verið notaðir, vita, að það eru eingöngu Rvíkingar, sem hafa haft gagn af þeim, og það er m. a. s, ekkert útlit fyrir, að þeir verði notaðir af öðrum. Ég vil t. d. minna á, að Rvíkingar hafa notað Eiðsvík fyrir vetrarhöfn. En nú eru komin þar svo mörg skipaflok á botninn, að það er alveg útilokað, að hún verði notuð fyrir skipalægi nema þau verði hreinsuð burt. Og ef Eiðsvík kemst inn undir hafnarlög Rvíkur, þá er bænum þegar skylt að hreinsa sitt hafnarsvæði, og þetta gera vitanlega ekki aðrir. Þegar Eiðssvík er komin undir hafnarlög Rvíkur, fellur sú skylda á Rvík að ná skipunum burt, annaðhvort á sinn kostnað eða þeirra, sem eiga skipin. Það er gott til þess að vita, að þessi ágæta höfn verði hreinsuð, og það er að mestu leyti þess vegna, að gert er ráð fyrir, að hún falli undir hafnarstj. Reykjavíkur. Ég held, að hér sé ekki verið að ásælast réttindi, sem neinn annar getur haft gagn af. Ef þetta mál er tafið, er um leið tafið fyrir því, að þessi vík verði notuð sem skipalægi. Allir vita, hvernig er um aðgang og eignarheimild Rvíkur að Skerjafirði, svo að um það þarf ekki að ræða. En jafnframt er nauðsynlegt að koma sundunum undir hafnarstj. Rvíkur, eins og ég hefi sýnt fram á.