28.04.1932
Neðri deild: 62. fundur, 45. löggjafarþing.
Sjá dálk 1848 í B-deild Alþingistíðinda. (1918)

165. mál, hafnarlög fyrir Reykjavíkurkaupstað

Bergur Jónsson:

Við 2. umr. þessa máls beindi hv. þm. G.-K. þeirri ósk til allshn., að hún leitaði umsagnar hlutaðeigenda um það, hvort þeir hefðu nokkuð við ákvæði l. gr. frv. um takmörkun Rvíkurhafnar að athuga, eins og gr. var samþ. við 2. umr. Út af þessu átti ég tal við bæjarfógeta Hafnarfjarðarkaupstaðar, sem jafnframt er oddviti sýslunefndar Kjósarsýslu, og hann lýsti því yfir og sagði, að ég mætti hafa það eftir sér, að hann hefði fyrir sitt leyti og sýslunnar ekkert við þessa takmörkun Rvíkurhafnar að athuga. Eftir þessu virðist hv. þm. Borgf. með óbeðinn erindisrekstur fyrir þá, sem hlut eiga að máli, þegar hann er að óskapast hér yfir yfirgangi og ásælni Rvíkur. A. m. k. kemur mér það undarlega fyrir, ef Kjósarsýsla hefir óskað eftir þeim erindisrekstri.