28.04.1932
Neðri deild: 62. fundur, 45. löggjafarþing.
Sjá dálk 1852 í B-deild Alþingistíðinda. (1924)

165. mál, hafnarlög fyrir Reykjavíkurkaupstað

Jón Auðunn Jónsson [óyfirl.]:

Það er rétt, sem hv. 3. þm. Revkv. sagði, að samkomulag við Seltjarnarneshrepp er fengið, ef brtt. mín á þskj. 535 verður samþ., og ég mun fylgja viðbótartillögu hans.

Hvað snertir aðfinnslur hv. 1. þm. Rang. við brtt. mína, þá er það svo, að það er ekkert nýtt fyrirbrigði, þó að flm. mála skýri þau. Hafa umsagnir flm. oft verið látnar nægja, þegar deilt hefir á um skilning sérstakra ákvæða.

Mér er ekki kunnugt um, að fullt samkomulag sé fengið um þetta mál við Mosfellshrepp. Ég hefi ekkert í því gert, því ég bjóst við, að n. myndi ganga frá því.