05.04.1932
Neðri deild: 43. fundur, 45. löggjafarþing.
Sjá dálk 1864 í B-deild Alþingistíðinda. (1963)
294. mál, frystihús á kjötútflutningshöfnum
Magnús Guðmundsson:
Ég kveð mér ekki hljóðs af því, að ég sé andvígur þessu frv., en ég vildi aðeins í sambandi við það leyfa mér að beina þeirri fyrirspurn til hæstv. forsrh., hvort þau frystihús, sem þegar hafa reist verið án styrks af opinberu fé, mundu ekki geta fengið þá ábyrgð, sem hér er um að ræða.
Mér er kunnugt um, að stj. vildi ekki fyrir nokkrum árum veita Sláturfél. Skagfirðinga hjálp til að koma upp frystihúsi þar á staðnum, og var því þá borið við, að ekki væri þörf á 2 frystihúsum á þessum stað, sem þá voru bæði í uppsiglingu. Reynslan hefir sýnt það, að þetta hafði við engin rök að styðjast, því að þótt húsin séu 2, verður oft að fresta slátrun á Sauðarkróki meðan beðið er eftir að skip sæki kjötið af því, sem slátrað er fyrri hluta kauptíðar, sökum þess, að bæði húsin eru full. Þetta umrædda fél. átti í miklum erfiðleikum með að koma húsinu upp, og á nú í vök að verjast um greiðslur á vöxtum og afborgunum af láni, sem fél. tók í þessu skyni. Vildi ég beina þeirri spurningu til hæstv. ráðh., hvort þetta hús mundi ekki geta fengið styrk af þessu fé. Ég held, að þetta sláturhús sé eina húsið, sem reist hefir verið án opinberrar aðstoðar.
Það er nú að vísu svo, að það væri hlutverk Búnaðarbankans að réttu að veita þessa umræddu aðstoð, og bankanum var raunverulega lögð sú skylda á herðar, með því að fá honum viðlagasjóð, en þar sem bankinn getur ekki risið undir þessu, hefi ég fyrir mitt leyti ekkert á móti því, að þessi ábyrgðarheimild verði veitt, enda þótt ég verði að líta svo á, að rétt hefði verið að láta meira af enska láninu renna í Búnaðarbankann en gert var.
Hæstv. forsrh. drap á norsku samningana. Er ég hræddur um, að það geti dregizt nokkuð að semja á ný, ef bíða á um það boða frá norsku stj., en þetta mál þolir enga bið, og vildi ég því skora á hæstv. stj. að gera allt, sem í hennar valdi stendur, til þess að samningarnir mættu sem fyrst verða endurgerðir. Ég ætla, að það muni erfitt þegar á næsta árum að hrinda kjötsölumálum okkar svo áleiðis, að ekki þurfi að salta meira og minna af því kjöti, sem við flytjum út, og við verðum að horfast í augu við þann sannleika, að norski markaðurinn er eini markaðurinn, sem við eigum völ á fyrir saltkjötið, og reyna af þeim ástæðum að ná sem allra hagkvæmustum tollsamningum við Norðmenn. Mál þetta þolir því enga bið.