05.04.1932
Neðri deild: 43. fundur, 45. löggjafarþing.
Sjá dálk 1866 í B-deild Alþingistíðinda. (1965)
294. mál, frystihús á kjötútflutningshöfnum
Magnús Guðmundsson:
Ég held, að ég hafi ekki haldið því fram, að það hafi verið veittur óafturkræfur styrkur til þessara frystihúsa. En það er náttúrlega ákaflega mikill styrkur að útvega lán með góðum kjörum, eins og viðlagasjóðslán, Það er svo mikill styrkur, að það nálgast það að fá 1/5 af framlagi, samanborið við það að fá lán gegn venjulegum bankavöxtum. Það eru einmitt þessi hlunnindi, sem þetta eina hús hefir farið á mis við, og það, að því er ég álít, fyrir ranga aðferð stj., því það var beinlínis svo, að það var neitað um lán til þessa húss, ef Sláturfél. Skagfirðinga væri með. Það hefir verið upplýst áður og það er hægt að gera það enn. En hvað snertir húsið á Húsavík, þá man ég ekki betur en að til þess hafi nýlega verið veitt lán úr Búnaðarbankanum. En það er langt frá mér að áfella það. Ég vil, að öll húsin hafi sömu kjör. En ef frystihúsið á Húsavík hefir orðið útundan, þá vil ég, að það verði leiðrétt líka.
Hæstv. ráðh. sagði, að það hefði verið hljótt um hina norsku samninga, eftir ráðum sendiherrans. Ég get trúað þessu, og það var heldur alls ekki mín meining að blása málið út, og það hefir ekki verið gert af hálfu okkar Sjálfstæðismanna. En það hefir ekki alltaf og allra sízt af hálfu hv stv. forsrh. verið fylgt þeirri reglu að hafa hljótt um samninga við aðrar þjóðir meðan á heim stóð. En ég viðurkenni, að það er rétt, sem sendiherrann segir, að það getur spillt mjög fyrir, og mætti benda á það út af gamla kjöttollssamningnum. Þá lét hæstv. forsrh. ekki vera hljótt um það mál. M. a. s. tóku norsku blöðin upp grein eftir hann, sem sumpart var tekin mjög óstinnt upp og sumpart skilin þannig, að hægt væri að heimta hvað sem væri af okkur.